131. löggjafarþing — 114. fundur,  20. apr. 2005.

Staða Landspítalans.

[13:19]

Sigurjón Þórðarson (Fl):

Frú forseti. Landspítali – háskólasjúkrahús er fjölmennasti vinnustaður landsins en þar vinna um 5 þús. manns. Það má búast við að á stærsta vinnustað landsins sé ekki eilíf lognmolla, sérstaklega í ljósi þess að framlög til sjúkrahússins hafa staðið í stað frá árinu 1999 á föstu verðlagi. Það er auðvitað ekki rétt að vera að bera saman hér og telja upp einhverja milljarða sem hafa aukist. Auðvitað verður að bera þetta saman á föstu verðlagi, annað er bara vitleysa.

Á sama tíma hafa veigamiklir kostnaðarliðir sjúkrahússins vaxið. Eftirspurn eftir þjónustu hefur einnig vaxið. Það verður að gæta þess að ekki verði slakað á kröfum til þjónustunnar og að öryggi sé til staðar. Þetta hefur leitt til þess að fara hefur þurft í aðhaldsaðgerðir á sjúkrahúsinu og það er tímanna tákn að á sama tíma og farið er í aðhaldsaðgerðir á sjúkrahúsinu eys ríkisstjórnin út fjármagni í hin og þessi gæluverkefni, svo sem að fjölga sendiherrum um tugi prósentna og sækjast eftir sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Hins vegar fást ekki svör á hinu háa Alþingi, fyrirspurn hefur legið fyrir frá því í nóvember um hver kostnaðurinn er við það. En það á að spara á sjúkrahúsunum.

Það er eðlilegt að víðtækur sparnaður og hagræðingaraðgerðir geti aukið vinnuálag á starfsfólk. Þá er mjög mikilvægt að hæstv. heilbrigðisráðherra hafi vakandi auga með og reyni eftir fremsta megni að virkja starfsfólk á jákvæðan hátt til þess að gæta að sparnaði. Einnig skiptir máli að hafa fólk með sér og gæta líka að því að það er ekki hægt að láta fólk hlaupa ætíð hraðar og hraðar fyrir sömu upphæð, það verður að fá einhverja umbun fyrir að taka þátt í sparnaðaraðgerðum stjórnvalda.