131. löggjafarþing — 114. fundur,  20. apr. 2005.

Sala á hlutabréfum í Landssíma Íslands hf. til almennings.

771. mál
[14:20]

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Ég harma það að hæstv. forsætisráðherra skuli enn leggjast gegn því að almenningur, hver og einn Íslendingur, geti strax keypt hluta í Símanum. Það er ástæða til þess því það er almenningur í landinu sem hefur myndað eignina. Símnotendurnir sem hafa um ára og áratuga skeið greitt reikninga sína hafa myndað það eigið fé sem verið er að selja og alveg lágmark að hver og einn Íslendingur geti gert kauptilboð í hlut í Símanum nú þegar og þurfi ekki að mynda sérstök félög um það.

Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra vegna umræðunnar um Morgan Stanley hvort hann telji ekki eðlilegt að Ríkisendurskoðun sinni eftirlitshlutverki sínu með því að kaupa alþjóðlega ráðgjöf um tillögur Morgans Stanleys óháð áliti á þeim tillögum og ákvörðun um sölutilhögunina, hvort það sé ekki mikilvægt að Ríkisendurskoðun hafi fjármagn og bolmagn til að fá óháða alþjóðlega ráðgjöf í þessu efni til að sinna eftirlitinu.