Kannanir á viðhorfum til orkufrekrar stóriðju.
Fyrirspyrjandi (Jón Bjarnason) (Vg):
Frú forseti. Það er mjög í tísku að gera skoðanakannanir um viðhorf fólks til ýmissa hluta. Það er sérstaklega athyglisvert þegar það eru opinberir aðilar sem gera slíkar skoðanakannanir. Ég tel mjög gagnlegt að gera skoðanakannanir til að kanna viðhorf til hinna ýmsu mála og bendi t.d. á skoðanakannanir sem hafa ítrekað verið gerðar á undanförnum þremur árum um það hvort þjóðin eigi að selja Símann. Árið 2002 vildu yfir 60% þjóðarinnar að Síminn væri áfram í opinberri eigu, og nú í ár, bæði í febrúar og mars, sýndu viðamiklar skoðanakannanir, gerðar af Gallup og Félagsvísindastofnun, að milli 70 og 80% af aðspurðum vildu ekki selja grunnfjarskiptakerfi Símans. Viljinn var mjög afdráttarlaus. Þá má spyrja hvort stjórnvöld vilji ganga gegn svo afdráttarlausum vilja.
En það voru líka gerðar kannanir á Norðurlandi um viðhorf til álvera. Hæstv. ráðherra fór þar um héruð og kynnti niðurstöður skoðanakönnunar sem iðnaðarráðuneytið hafði beitt sér þar fyrir, könnunar Norðlendinga til álvera.
Í framhaldi af því langar mig til að spyrja hæstv. iðnaðarráðherra nokkurra spurninga:
1. Hve mikið fjármagn hefur iðnaðarráðuneytið til ráðstöfunar til að kynna orkufreka stóriðju á þessu ári?
2. Hvað kostuðu kannanir sem ráðherra lét gera nýverið á afstöðu Norðlendinga til álvera og stórvirkjana í fjórðungnum?
3. Telur ráðherra að fullnægjandi mynd fáist af viðhorfum Norðlendinga til ólíkra leiða við atvinnuuppbyggingu með því að spyrja einungis um afstöðu fólks til álvera?
Það var eini iðnaðurinn sem spurt var um, það var bara spurt um álver og síðan stórvirkjanir til álvera.
4. Hyggst ráðherra standa fyrir sambærilegum könnunum á afstöðu Norðlendinga til uppbyggingar í öðrum atvinnugreinum og taka þá fyrir eina og eina atvinnugrein í senn eins og ráðherra gerði með álframleiðsluna?
Ég tel mjög mikilvægt að átta sig á hvernig héraðið upplifir ímynd sína og áherslur. Til dæmis hefði mátt spyrja: Viljum við byggja upp ferðaþjónustu og viljum við gera stórátak í uppbyggingu á ferðaþjónustu á svæðinu? Viljum við gera stórátak í uppbyggingu á matvælaiðnaði á svæðinu? Það er hægt að spyrja svo margs til þess að fá heildarsýn (Forseti hringir.) yfir vilja íbúanna eða (Forseti hringir.) hvernig þeir sjá ímynd sína.