Kannanir á viðhorfum til orkufrekrar stóriðju.
iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):
Hæstv. forseti. Sem svar við fyrstu spurningunni: Samkvæmt sundurliðun á fjármálum ríkisaðila í A-hluta fjárlaga fyrir árið 2005 hefur iðnaðarráðuneytið samtals 19,7 millj. kr. til ráðstöfunar í iðnaðaðarrannsóknir og stóriðju. 5 millj. kr. af þeirri fjárhæð eru veittar til rannsókna á samfélagslegum áhrifum virkjana og álversframkvæmda á Austurlandi. Hluti fjárveitingarinnar fer til greiðslu lögfræðiþjónustu vegna samningagerðar sem og ferðakostnaðar. Á árinu 2005 hefur ráðuneytið áætlað að 6 millj. kr. af fjárveitingunni fari í kynningar gagnvart erlendum fjárfestum.
Það var Gallup sem gerði könnunina sem hér er um rætt og hún kostaði 1.050 þús. kr. án virðisaukaskatts.
„Telur ráðherra að fullnægjandi mynd fáist af viðhorfum Norðlendinga til ólíkra leiða við atvinnuuppbyggingu með því að spyrja einungis um afstöðu fólks til álvera?“
Svarið er eftirfarandi: Nei, enda var það ekki tilgangurinn með viðhorfskönnuninni. Fyrir liggur að nokkur erlend álfyrirtæki hafa sýnt áhuga á að skoða möguleika á að byggja álver á Norðurlandi. Fyrir liggur jafnframt að misvísandi skilaboð hafa borist um áhuga á því meðal Norðlendinga hvort reisa eigi álver á Norðurlandi. Á undanförnum árum hefur verið unnið að undirbúningi stóriðjulóða í Eyjafirði og við Húsavík í samstarfi ráðuneytisins og heimamanna, og sveitarstjórn Skagafjarðar hefur óskað eftir stuðningi ráðuneytisins við sambærilegan undirbúning í Skagafirði. Í þessari stöðu taldi ég nauðsynlegt að kanna hug íbúa á þessum svæðum til stóriðju á þremur stöðum á Norðurlandi áður en lengra yrði haldið. Niðurstöður könnunarinnar gefa haldgóðar vísbendingar en þeim er ekki ætlað að vera neinn stóridómur um hvort, hvar eða hvenær álver verður byggt á Norðurlandi.
„Hyggst ráðherra standa fyrir sambærilegum könnunum á afstöðu Norðlendinga til uppbyggingar í öðrum atvinnugreinum og taka þá fyrir eina og eina grein í senn?“
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur sett ráðuneytunum eftirfarandi fjögur markmið í starfsemi þeirra á tímabilinu 2004–2007:
1. Að auka fjölbreytni atvinnulífsins og bæta samkeppnisstöðu Íslands.
2. Að treysta búsetu á landsbyggðinni.
3. Að nýta auðlindir þjóðarinnar skynsamlega.
4. Að bæta leikreglur viðskiptalífsins.
Að þessum markmiðum er unnið og árangurinn leynir sér ekki. Markvisst þróunarstarf og nýting sóknarfæra í atvinnulífinu auk eflingar menntunar og menningar er áberandi í þessum markmiðum ráðuneytisins. Fjölbreytni atvinnulífs á Norðurlandi hefur aukist með eflingu menntastofnana á Akureyri og á Hólum, Nýsköpunarmiðstöðvar á Akureyri og framkvæmd byggðastefnu almennt. Ekki er vafi á að svokallaður vaxtarsamningur eins og nýverið var gerður fyrir Eyjafjarðarsvæðið á eftir að efla byggðarkjarna og treysta búsetu á Norðurlandi.
Ég vil því leggja áherslu á að ýmislegt er í farvatninu annað en stóriðja og ekki ástæða til að gera lítið úr því.
Svo að ég svari spurningu hv. þm. Jóns Bjarnasonar beint tel ég að svo stöddu ekki vera tilefni til að kanna hug Norðlendinga til einstakra aðgerða til uppbyggingar í öðrum atvinnugreinum lið fyrir lið í viðhorfskönnun. Ráðuneytið hefur í samvinnu við heimamenn metið og forgangsraðað verkefnum sem eru talin hafa mikla þýðingu fyrir samfélagið. Þetta eru m.a. rannsóknarverkefni og nýsköpunarstarfsemi á sviði auðlindalíftækni sem byggir á þekkingu í hefðbundnum atvinnugreinum í sjávarútvegi og landbúnaði. Stóriðjan hefur nokkra sérstöðu fyrir það að vera afar áhrifamikil aðgerð til eflingar atvinnulífi, ekki síst vegna margfeldisáhrifa á flestum sviðum samfélagsins en um leið umdeild vegna umhverfisáhrifa. Því gegnir þar öðru máli og ástæða til að stíga skrefin í takt við vilja íbúa viðkomandi svæða.