131. löggjafarþing — 116. fundur,  20. apr. 2005.

Hellisheiði og Suðurstrandarvegur.

672. mál
[17:13]

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):

Virðulegi forseti. Það eru gríðarleg vonbrigði að Suðurstrandarvegur skuli hafa dottið fyrirvaralaust út úr vegáætlun, horfið þaðan nánast sporlaust.

Ég vil líka nota tækifærið hér til að benda á að stjórnarþingmenn í Suðurkjördæmi, þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, eru eins og lufsur í þessu máli. Þeir virðast ætla að láta þetta yfir sig ganga eins og ekkert sé. Þeir taka ekki til máls í umræðum um vegáætlun, þegja þunnu hljóði, eru hér á samsærisfundum með útvöldum sveitarstjórnarmönnum úr kjördæminu til að ráðskast um það hvort fara eigi í Suðurstrandarveg eða ekki. Síðan kemur það eins og skrattinn úr sauðarleggnum að þessi vegur hafi verið sleginn af. Málið hefur ekki verið rætt við okkur þingmenn í kjördæminu og það ætti að vera fyrsta forgangsverk samgönguráðherra, ef hann vill ná sátt um þessi mál, að sjá til þess að málið fari í gegnum almennilega umræðu við þingmenn kjördæmisins. Svona vinnubrögð hljóta að vera með öllu ólíðandi.