131. löggjafarþing — 117. fundur,  25. apr. 2005.

Varamenn taka þingsæti.

[16:00]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá Einari K. Guðfinnssyni, þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, dagsett 22. apríl:

„Þar sem Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra, 1. þingmaður Suðvesturkjördæmis, er á förum til útlanda í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, Sigurrós Þorgrímsdóttir, taki sæti hans á Alþingi á meðan.“

 

Sigurrós Þorgrímsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.