131. löggjafarþing — 118. fundur,  26. apr. 2005.

Varamenn taka þingsæti.

[13:32]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá Kristjáni L. Möller, varaformanni þingflokks Samfylkingarinnar, dagsett 26. apríl 2005:

„Þar sem Katrín Júlíusdóttir, 9. þingmaður Suðvesturkjördæmis, getur ekki sótt þingfundi á næstunni vegna veikinda óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, Valdimar L. Friðriksson framkvæmdastjóri, Mosfellsbæ, taki sæti á Alþingi á meðan en 1. varamaður á listanum er staddur erlendis og næst ekki til hans að svo stöddu.“

 

Valdimar L. Friðriksson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný. Er litið svo á að það sé heimilt að Valdimar L. Friðriksson taki sæti á Alþingi ef enginn hreyfir andmælum.