131. löggjafarþing — 118. fundur,  26. apr. 2005.

Samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu.

704. mál
[13:55]

utanríkisráðherra (Davíð Oddsson) (S):

Herra forseti. Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2005 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 17. janúar og 15. febrúar sl.

Samningur þessi, sem kveður á um allar heimildir hvors aðila til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu hins á þessu ári, er samhljóða samningi aðila frá því í fyrra. Gerir samningurinn ráð fyrir að aðilar semji fyrir 20. júní 2005 um veiðiheimildir færeyskra nótaskipa á loðnuvertíðinni sem stendur frá þeim degi til apríl 2006. Er eins og áður við það miðað að veiðiheimildir færeyskra nótaskipa á þessu tímabili verði um 30.000 lestir enda breytist forsendur varðandi leyfðan heildarafla og önnur atriði er máli skipta ekki í verulegum atriðum.

Í samningnum er eins og í samningi aðila frá fyrra ári kveðið á um að færeyskum skipum sé heimilt á loðnuvertíðinni 2005–2006 að veiða allt að 10.000 lestir af loðnu innan lögsögu Íslands úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda. Samningurinn gerir enn fremur ráð fyrir gagnkvæmri heimild skipa hvors aðila til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu hins á árinu 2005. Þá er í samningnum staðfest heimild íslenskra skipa til veiða á allt að 1.300 lestum af makríl og 2.000 lestum af síld annarri en norsk-íslenskri innan færeyskrar lögsögu á þessu ári.

Loks er í samningnum kveðið á um að hvor aðili skuli veita tveimur skipum, sem skráð eru í landi hins aðilans, leyfi til tilraunaveiða á túnfiski innan lögsögu sinnar á þessu ári.

Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögu þessari vísað til hv. utanríkismálanefndar.