131. löggjafarþing — 118. fundur,  26. apr. 2005.

Samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu.

704. mál
[14:08]

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Það er í sjálfu sér ekkert nema gott um þennan samning eða framlengingu á þessum árlega samningi Íslands og Færeyja að segja hvað varðar samskipti okkar, einkum á sviði veiða á uppsjávarfiskum sem hér eiga við, en það gefur þó fullt tilefni til að ræða ýmis tengd atriði og eftir atvikum inna hæstv. ráðherra eftir hlutum sem eru knýjandi um þessar mundir.

Það fyrsta sem ég vil segja er að það er auðvitað enginn vafi á því að gagnkvæm vinsamleg samskipti Íslands og Færeyja hafa skilað báðum þjóðum miklum árangri. Framan af var það auðvitað þannig að Færeyingar nutu kannski fyrst og fremst góðs af því að hafa veiðiréttindi á íslenskum miðum án þess að um mikla gagnkvæmni væri að ræða. En það er hollt fyrir þá sem um tíma töluðu fyrir því að skera niður eða jafnvel afnema með öllu þessi veiðiréttindi Færeyinga, á árum þegar við þurftum sjálfir að skera niður þorskveiðiheimildir okkar, að fara yfir það hversu hagstæð í raun og veru þessi samskipti hafa síðan orðið okkur Íslendingum hin síðari ár. Ég minnist þess vel að meira að segja forustumenn LÍÚ féllu í þá gryfju á köflum á 9. áratugnum að krefjast þess að veiðiheimildir yrðu með öllu teknar af Færeyingum sem þá voru fyrst og fremst í þorski og tegundum sem veiddust á línu, eins og löngu, lúðu og öðrum slíkum.

Þegar veiðar hófust aftur á norsk-íslensku síldinni utan lögsögu Noregs eða úti í Síldarsmugunni og árin þar á eftir kom það heldur betur á daginn að hagstætt var fyrir Ísland að eiga góða granna í austri þar sem voru Færeyingar og a.m.k. eitt árið veiddum við mestallan hlut okkar af norsk-íslensku síldinni nyrst í færeysku lögsögunni á grundvelli þeirrar gagnkvæmni sem þá var búið að ná samkomulagi um milli Íslands og Færeyja. Það hjálpaði okkur síðan til að undirbyggja kröfur okkar í samningaviðræðum um þann stofn.

Nú er staðan því miður þannig að hvorki eru fyrir hendi samningar milli þjóðanna sem aðild eiga að málinu hvað varðar norsk-íslensku síldina né kolmunnann. Það er mikið áhyggjuefni og ég held að ástæða sé til að ræða það, m.a. í samhengi við samskipti okkar og Færeyinga því að báðar þjóðir eiga þarna verulegra hagsmuna að gæta og að verulegu leyti sameiginlegra, því að andstæðingar okkar í þessum efnum og í samningaviðræðunum og okkar erfiðustu mótherjar þar eru Norðmenn og eftir atvikum síðan Evrópusambandið sem heldur jafnframt uppi óbilgjörnum kröfum. Það verður líka að segjast eins og er að mann undrar á köflum óbilgirnin svo ekki sé sagt ósvífnin. Ég vona að ég megi nota það orð hér þó að hæstv. utanríkisráðherra sé viðstaddur, að taka svo stórt upp í mig að kalla það ósvífni t.d. þegar Norðmenn reyna á bak við tjöldin að gera sérsamning við Evrópusambandið og fá það til að fallast á hærri hlutdeild sína í norsk-íslensku síldinni án þess að tala við hina aðila að samskiptunum.

Varðandi kolmunnastofninn er ástandið mjög alvarlegt þar sem nú eru komnar fram vísbendingar sem menn hafa reyndar því miður búist við, jafnvel undanfarin ár þó að það hafi látið á sér standa sem betur fer og ekki komið fram fyrr en núna, að nú sé stofninn tekinn að gefa eftir vegna hinnar gríðarlegu veiði úr honum á undanförnum missirum. Þá verður ástandið auðvitað þeim mun alvarlegra ef menn halda áfram að veiða stjórnlaust og mun meira en ráðgjöfin kveður á um.

Þá má velta því fyrir sér hvort Ísland og Færeyjar gætu, ef menn stæðu saman um það, og mögulega jafnvel fleiri þjóðir, þrýst á um að þarna takist samningar og beitt til þess t.d. þeim möguleikum sem eru fólgnir í löndunarbanni á a.m.k. þeim tegundum sem ekki hefði samist um veiðar á í báðum löndunum, þ.e. gagnvart utanaðkomandi aðilum, og mögulega jafnvel látið það ganga lengra og sagt þá upp eða a.m.k. semja ekki, framlengja ekki samninga um aðra hluti eins og t.d. samninga okkar við Norðmenn um loðnuna. Það fer að muna verulega um það ef skip geta ekki landað afla á bræðslufiski, sem eru við veiðar af því tagi hér vestarlega í norðanverðu Atlantshafinu, ef hafnir eru lokaðar í þeim efnum eða verksmiðjur bæði á Íslandi og í Færeyjum. Það má auðvitað segja að með því færum við auðvitað vissa fórn ef við fáum ekki þann afla til vinnslu en við torveldum þá Norðmönnum, Evrópusambandsríkjum eftir atvikum eða jafnvel Rússum, verulega þessa nýtingu og það er auðvitað engin ástæða til að við greiðum fyrir því að þeir geti haldið áfram veiðum langt umfram það sem ráðgjöf stendur til á stofnum sem eru jafnvel á niðurleið eins og kolmunninn. Ég held að ástæða sé til að skoða jafnvel slíka hluti hvort ekki megi útfæra samstarf ríkjanna að þessu leyti og kanna hvort Færeyingar væru tilbúnir í sameiginlegar aðgerðir með Íslendingum sem gengju jafnvel lengra en þau gagnkvæmu skipti á veiðiréttindum í loðnu, síld, kolmunna, makríl og fleiri tegundum sem við höfum verið að ræða hér um og semja um. Að sjálfsögðu eru þetta ekki hlutir sem menn mundu kannski beinlínis boða úr ræðustóli á Alþingi heldur eitthvað sem menn þyrftu að fara yfir í trúnaðarsamtölum bak við tjöldin.

Mér finnst ástæða til að velta þessum hlutum upp um leið og ég undirstrika það og endurtek að ég held að í gagnkvæmum og góðum samskiptum Íslands og Færeyja sé mikill fengur og við eigum að viðhalda þeim og þó að í einhverjum mæli séu í þeim gamla góða anda að við séum ekki endilega að krefjast þar fullkomins endurgjalds, eins og auðvitað á ekki við enn sem komið er um þau 5–6 þúsund tonn af botnfiski sem Færeyingar hafa enn leyfi til að veiða við Ísland og eru þeim gríðarlega mikilvæg, eru m.a. undirstaða bátaútgerðarinnar eða línuútgerðarinnar í fjölmörgum smærri byggðarlögum í Færeyjum, en skiptir það ekki þeim sköpum í okkar stóra fiskveiðidæmi að það sé tilefni til að draga úr því eða breyta því.

Ég tel að eigum við tvímælalaust að rækta áfram þessi samskipti og jafnvel horfa til þess vegna aðstæðna sem nú eru uppi í samskiptum fiskveiðiþjóðanna nyrst í Atlantshafinu og í Norðurhöfum að útfæra það enn frekar, ef það mætti verða til þess að mynda öflugri blokk eða samstöðu um aðgerðir til að þrýsta á samkomulag varðandi þær tegundir sem enn er ósamið um.