Skattskylda orkufyrirtækja.
Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vek athygli á því að hv. þingmaður nefndi ekki einu orði ævintýrafjárfestingar sem vinstri grænir hafa staðið í og neita opinberri rannsókn á þó full ástæða sé til þess. Ef einhvern tímann er ástæða til þess að rannsaka eitthvað, einhverjar fjárfestingar opinberra aðila, þá er það Línu.net ævintýrið sem menn ætluðu að setja að hámarki 200 milljónir í en settu í á milli 5 og 6 milljarða. Hverjir bera ábyrgð á því? Jú, virðulegi forseti, það eru líka vinstri grænir sem hafa lagt sig fram við að koma í veg fyrir rannsókn á því. Ef einhver trúir því þegar þessir aðilar koma hér eða Samfylkingin og vilja fá opinbera rannsókn á öllu milli himins og jarðar þá skyldu þeir skoða þeirra eigin gerðir.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Ögmundur Jónasson og vinstri grænir bera ábyrgð á stóriðju í Hvalfirði, hvorki meira né minna. Um það var algjör samstaða í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og þar situr fulltrúi vinstri grænna. Það var algjör samstaða í stjórn Reykjavíkurborgar, borgarstjórn, og þar eru fulltrúar vinstri grænna. Ekki eitt einasta orð heyrðist gegn stóriðjustefnunni þegar menn voru að ræða slíkt. Ekki eitt einasta orð, virðulegi forseti. Þetta er hreint og klárt. (JÁ: Farðu nú að tala um skattahækkanirnar.)
Ég hvet hv. þingmann til að útskýra það af hverju vinstri grænir neita og hafa notað lýðræðisleg bolabrögð, ef þannig má að orði komast, til að koma í veg fyrir að skoðaðar verði þessar ævintýrafjárfestingar í Línu.net og sambærilegum hlutum. Ég hvet hv. þingmann til þess að upplýsa það. Á sama hátt, virðulegi forseti, hvet ég hann til að útskýra fyrir okkur af hverju vinstri grænir studdu stóriðjuna í Hvalfirði.