131. löggjafarþing — 118. fundur,  26. apr. 2005.

Skattskylda orkufyrirtækja.

364. mál
[17:54]

Dagný Jónsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Ögmundur Jónasson kom inn á marga hluti í ítarlegri ræðu sinni áðan. Til að mynda kom hann inn á þær breytingar sem urðu á raforkumarkaði en þær breytingar eru einmitt grunnurinn að því máli sem við erum að ræða hér. Ég ætla ekkert að draga úr því að þessar breytingar voru erfiðar og eru erfiðar. Við höfum ávallt haldið því fram að þegar reynsla verður komin á þetta þá verði þetta endurskoðað og staðan metin.

Það er alveg ljóst að margir hafa fengið mjög háa rafmagnsreikninga. Margir hafa fengið leiðréttingar. En það er nú bara þannig að aflesturinn gefur ekki rétta mynd og þess vegna verðum við að gefa þessu tíma.

Hv. þingmaður talaði einnig um fyrirskipanir frá Brussel. Þetta er nokkuð sem við erum að taka upp samkvæmt því. En ég vil halda því hér til haga að samkvæmt málflutningi þeirra sem stóðu í þessu máli á sínum tíma — þeir halda því fram — þá var gengið eins langt og hægt var á sínum tíma varðandi þessa undanþágu og trúi ég því vel. Hins vegar get ég alveg tekið undir með hv. þm. Ögmundi Jónassyni þegar hann spyr hvort við séum of ginnkeypt fyrir öllum þessum tilskipunum. Hvað með t.d. Frakka sem eru búnir að fá, held ég, eitthvað, heyrði ég síðast, um 100 dóma frá ESA og gera ekkert með þá og það gerist ekki neitt. Ég held að þetta séu atriði sem við getum hugleitt.

Ég hlýt að koma aðeins inn á orð hv. þingmanns um stóriðjustefnuna. Vinstri hreyfingin – grænt framboð getur ekki firrt sig allri ábyrgð varðandi uppbyggingu í Hvalfirði sem ég er mjög ánægð með. Það er jú þannig að það er greinilega ekki sama hvar uppbyggingin er. Nú horfum við fram á stækkun í Hvalfirði og í Straumsvík. Og það heyrist ekkert. En hvað mega Austfirðingar þola frá Vinstri hreyfingunni – grænu framboði? Það er gjörsamlega óþolandi að ekki skuli gilda sama um alla hjá flokki sem segist standa í fæturna í áróðri gegn stóriðjustefnu.