Skattskylda orkufyrirtækja.
Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):
Hæstv. forseti. Það gildir sama um allt og alla. Ég hef t.d. fyrir mitt leyti flutt hér margar ræður um efnahagsleg áhrif af stóriðjustefnunni almennt og hversu skaðleg hún er fyrir íslenskt atvinnulíf, auk þess sem hún valdi náttúruspjöllum. Varðandi síðasta atriðið þá höfum við staðið þessa vakt. Það verður ekkert af okkur tekið. Þó menn langi mikið til að gera það þá er það staðreynd að við höfum staðið þessa umhverfisvakt og við höfum gagnrýnt stóriðjustefnuna hvort heldur hér á þingi eða í sveitarstjórnum sem við höfum átt aðild að.
Um hin atriðin sem hv. þingmaður víkur að er þetta að segja. Það er ekki komin reynsla á þær kerfisbreytingar sem framkvæmdar voru á raforkumarkaði. Það er alveg rétt. Það á eftir að koma í ljós hver endanleg niðurstaða verður, hverjar endanlegar afleiðingar verða. Það sem menn veðja þá á væntanlega, til að reynslan verði góð, er að samkeppni á þessu sviði eigi eftir að færa okkur einhverjar hagsbætur. Það sem er hins vegar að gerast í Evrópu, og ekki er aðeins líklegt að gerist hér heldur í Evrópu líka, er að samkeppnin og þær hagsbætur sem hún veitir láta á sér standa. Það myndast örfá fyrirtæki sem skipta markaðnum á milli sín og það er ekki um neina samkeppni að ræða. Þvert á móti þá gerist það eftir að þessi fyrirtæki hafa verið sett í einkahendur að arður er tekinn út í óhóflegum mæli þannig að það bitnar einnig á notandanum. Í þessum kortum liggja því ekki þær umbætur og þær hagsbætur sem menn vilja vera láta.
Varðandi það hvort gengið hafi verið eins langt og hægt var varðandi raforkutilskipunina. Ekki sá ég þess merki. Menn eru að staðhæfa þetta núna. Hæstv. forsætisráðherra hefur gert það. Ég sá þess ekki merki. Ég fylgdist (Forseti hringir.) mjög vel með þessari umræðu og tók þátt í henni í þingsalnum þegar hún fór hér fram (Forseti hringir.) á sínum tíma.