131. löggjafarþing — 121. fundur,  3. maí 2005.

Breyting á ýmsum lögum á orkusviði.

396. mál
[17:08]

Einar Már Sigurðarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það var sérkennilega ræða sem hv. þm. Birkir J. Jónsson hélt yfir okkur áðan. Hér er aðeins verið að fjalla um frumvarp sem í rauninni er mikil samstaða um í iðnaðarnefnd, þ.e. að það verði að fylgja ef frumvarpið um skattskyldu orkufyrirtækja verður samþykkt. Það var því undarlegt að hv. þingmaður notaði þetta tækifæri til þess að hjóla hér í allt og alla að því er mér finnst algjörlega að ástæðulausu.

Ég lít þannig á að þetta sýni fyrst og fremst það að hv. þingmaður er ekki fyllilega sáttur við hvernig að þessum málum hefur verið staðið en handjárnin á stjórnarliðinu gera það auðvitað að verkum að hann verður að standa hér keikur og styðja þetta allt saman. Það virðast helst vera raforkubændur sem hv. þingmaður hefur áhyggjur af og telur að hægt sé að bæta hag þeirra verulega með þeim frumvörpum sem hér liggja fyrir. Ég verð að spyrja hv. þingmann að því hvað það er sem bætir hag raforkubænda með því að takmarka verulega tekjumöguleika sveitarfélaganna. Þetta er sérkennilegasta tenging sem ég hef heyrt lengi.