131. löggjafarþing — 122. fundur,  4. maí 2005.

Samþætting kynjasjónarmiða í alþjóðastarfi.

685. mál
[10:43]

Fyrirspyrjandi (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Í jafnréttisáætlun ríkisstjórnarinnar sem samþykkt var í maí á síðasta ári kennir ýmissa grasa. Þar eru utanríkisráðuneytinu falin tvö sérstök verkefni, auk þeirra sem ráðuneytin eiga öll að sinna og mega teljast almenns eðlis.

Annað þessara verkefna er gerð tillagna til ráðherra um sérstaka vinnu- og aðgerðaáætlun um samþættingu kynjasjónarmiða í alþjóðastarfi Íslands.

Ég fagna því, hæstv. forseti, að utanríkisráðuneytið hafi sett þetta verkefni inn í jafnréttisáætlun sína og tekist á hendur það verkefni að vinna þessar tillögur. Á þskj. 1331 frá síðasta löggjafarþingi kemur fram að gerð tillagnanna hafi átt að fara fram á síðasta ári, árið 2004, og til þess hafi verið stofnuð samráðsnefnd utanríkis- og félagsmálaráðuneytis.

Í stuttri fyrirspurn sem þessari gefst ekki tími til að ræða að neinu gagni um gildi þess og nauðsyn að samþætta kynjasjónarmið, ekki aðeins inn í starf fulltrúa Íslands í alþjóðastofnunum eða á alþjóðlegum vettvangi heldur inn í utanríkisstefnuna alla. Það þýðir í raun, hæstv. forseti, að mínu áliti að endurskoða þarf íslenska utanríkisstefnu í heild með tilliti til stöðu og hagsmuna kynjanna. Hvergi er þetta líklega augljósara en í samstarfi norðurs og suðurs, svo sem í þróunarsamvinnu, í samstarfi á vettvangi umhverfismála og svo í baráttunni gegn mansali og kynlífsþrælkun sem vissulega fer fram víða, ekki bara í stjórnkerfinu heldur einnig meðal almennings og meðal frjálsra félagasamtaka.

Það er líka mikilvægt að gera sér grein fyrir því að í hinum hnattvædda heimi sem við búum í og köllum svo er nauðsyn á því að horfa gagnrýnum augum á þau mælitæki sem notuð eru til þess bæði að mæla árangur og stefnumótun í utanríkisstefnu með tilliti til kynjanna. Það er þekkt að konur víða um heim hafa gagnrýnt þau mælitæki og þær aðferðir sem notaðar hafa verið, ekki bara við mótun stefnunnar heldur einnig við mat á henni. Einföldustu hlutir eins og kyngreind tölfræði, t.d. þegar metinn er árangur í þróunarsamvinnu, af því að hann hefur verið til umræðu í dag, virðast ekki vera notaðir, því miður. Oftar en ekki eru áhrif ákvarðana stjórnvalda og alþjóðastofnana á líf kvenna og karla og fjölskyldna þeirra, á hversdagslíf fólks, ekki tekin inn í reikninginn. Þess vegna er mjög brýnt að fara í þessi verkefni og mig fýsir að vita (Forseti hringir.) hvað líður setningu þessa reglna í utanríkisráðuneytinu.