131. löggjafarþing — 122. fundur,  4. maí 2005.

Bílastæðamál fatlaðra.

674. mál
[11:12]

Valdimar L. Friðriksson (Sf):

Herra forseti. Bílastæðamál fatlaðra hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu. Ástæðan er sú staðreynd sem hér hefur verið nefnd að ófatlaðir einstaklingar eiga það til að leggja ökutækjum sínum í bílastæði sem eru sérmerkt fötluðum.

Ég kom að máli við eina fatlaða manneskju, Hönnu Kristleifsdóttur, sem er bundin við hjólastól og að hennar sögn er hér mikið vandamál á ferðinni, e.t.v. meira en við hin gerum okkur grein fyrir. Þetta heftir vissulega för þeirra og aðgengi að ýmsum stofnunum og verslunum, sérstaklega þá á álagstímum, á stórhátíðum og um helgar. Samkvæmt umferðarlögum má eigi stöðva ökutæki á sérmerktum stæðum fyrir fatlaða. Ég tel í þessu sambandi bráðnauðsynlegt að teknar verði upp háar fésektir í þeirri trú að slíkar sektir hafi ákveðinn fælingarmátt til að tryggja að fatlaðir (Forseti hringir.) hafi greiðan aðgang.