Jarðgangagerð.
Kristján L. Möller (Sf):
Virðulegi forseti. Ekki ætla ég að eyða þeim stutta tíma sem ég hef til að ræða um þær samgöngubætur sem verða við það að gera jarðgöng víðs vegar um landið, sérstaklega þar sem menn eru þá að fara úr mikilli vegahæð og niður. Ég kem hins vegar hér upp til að hæla og þakka hæstv. samgönguráðherra fyrir það sem hann sagði um verktaka sem munu bjóða í, þ.e. að þeir verði ekki skikkaðir til að bjóða eingöngu í að vinna þetta á gamla mátann, að sprengja, heldur sé verktökum frjálst að bjóða fram aðra tækni eins og bortæknina. Ég lýsi miklum stuðningi við það og vænti þess að í væntanlegu forvali fyrir næstu jarðgöng, Héðinsfjarðargöng, verði boðið upp á þennan möguleika. Ég hvet, eins og hér kom fram hjá hæstv. samgönguráðherra, verktaka og aðra til að nýta sér þá tækni sem komin er hingað til lands vegna framkvæmda á Austurlandi. Vænti ég þess að við munum þá (Forseti hringir.) væntanlega og vonandi sjá algjörlega nýjar tölur hvað þetta varðar.