Kostnaður af viðhaldi þjóðvega.
samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir umræðuna og þann skilning og þann stuðning sem þeir sýna þörfinni á að tryggja samgöngukerfið og sérstaklega vegakerfið.
Aðeins út af því sem fram kom hjá hv. þm. Kristjáni L. Möller og hv. þm. Jóni Bjarnasyni um sjóflutninga, að það voru skipafélögin sem tóku ákvörðun um að hætta strandsiglingunum. Að vísu er enn þá siglt lítillega við ströndina, aðallega til Vestfjarða, en ástæðurnar sem tilgreindar voru fyrir þeirri stóru ákvörðun á hjá Samskipum fyrir nokkrum missirum og síðan Eimskip voru auknar kröfur um hraða í flutningum. Skipafélögin voru því að bregðast við kröfum markaðarins. Ég er algerlega ósammála því sem fram kom hjá hv. þm. Kristjáni L. Möller að við eigum að taka mikilvæga fjármuni sem við ætlum að nota í uppbyggingu vegakerfisins og þjónustu á vegakerfinu og færa í það verkefni að greiða niður sjóflutninga, sjóflutninga sem skipafélögin telja hvorki hagkvæma né að þeir uppfylli kröfur neytenda og þeirra sem eiga í viðskiptum við flutningafyrirtækin.
Ég tel því að við séum ekki á réttu róli hvað það varðar að hefja skipaútgerð ríkisins að nýju. Það er liðin tíð. Ég held að við eigum við fyrst og fremst að beina sjónum okkar að uppbyggingu vegakerfisins og bæta það allt hvað af tekur með (Forseti hringir.) auknum fjármunum.