Jarðgöng í Dýrafirði.
Einar K. Guðfinnsson (S):
Virðulegi forseti. Ég þakka umræðuna. Málið sem hér um ræðir er gamalt baráttumál Vestfirðinga. Ég vek athygli á því að á sínum tíma var hið faglega mat Vegagerðarinnar að setja bæri göngin í sama flokk og þau göng sem þegar hafa verið ákveðin eða þegar er verið að vinna að.
Á þeirri stuttu stundu sem ég hef til umræðu ætla ég einungis að nefna einn hlut varðandi jarðgöng í Dýrafirði, sem ég tel ákaflega þýðingarmikið að menn hafi í huga, að þegar farið verði í göngin verði það gert með þeim hætti að menn sjái algjörlega fyrir sér lausnina á vegagerðinni úr Dýrafirði og alla leið vestur á Barðaströnd. Það er ákaflega þýðingarmikið að menn skoði þetta í samhengi. Það er ekki nægjanlegt að fá göngin milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, við þurfum líka að leysa leiðina úr Arnarfirði yfir á Barðaströnd. Að mínu mati verður það ekki gert með hefðbundinni uppbyggingu á vegi eins og við þekkjum hann núna yfir Dynjandisheiðina. Það verður annaðhvort gert með frekari jarðgangagerð ellegar með uppbyggingu á verulegum vegskálum á þessari slóð, því við verðum auðvitað að gera þetta þannig að það séu heilsárssamgöngur (Forseti hringir.) fyrir alla bíla, allt árið um kring.