131. löggjafarþing — 122. fundur,  4. maí 2005.

Jarðgöng í Dýrafirði.

775. mál
[11:58]

Anna Kristín Gunnarsdóttir (Sf):

Herra forseti. Ég á sama erindi upp í ræðustól og hv. þm. Einar K. Guðfinnsson, að leggja áherslu á að samgöngur milli norður- og suðurhluta Vestfjarða verða ekki komnar í gott horf fyrr en búið er að leggja jarðgöng einnig undir Dynjandisheiði. Þar er um að ræða háa heiði. Þar er veðravíti oft á vetrum. Framtíðin er í jarðgöngum. Ég legg því áherslu á að kostnaðarmat við göng undir Dynjandisheiði verði gert samhliða því að skoða jarðgöng milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar.