131. löggjafarþing — 122. fundur,  4. maí 2005.

Jarðgöng til Bolungarvíkur.

776. mál
[12:19]

Birkir Jón Jónsson (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágæt svör við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar í þessum efnum.

Það var athyglisvert að hlusta á þingmenn Vinstri grænna sem komu hér pirraðir upp og eru pirraðir yfir því að stjórnarliðar skuli voga sér að spyrja spurninga í fyrirspurnatíma á hinu háa Alþingi, tala hér eins og stjórnarandstaðan eigi einhvern einokunarrétt á fyrirspurnum til framkvæmdarvaldsins. Hvers lags málflutningur er þetta eins og hjá hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni? Hann vill bara eiga þennan ræðustól einn og sér, tala eins og á útifundi, hrópa og kalla. (Gripið fram í.) Og hér koma hróp og köll utan úr salnum, hæstv. forseti.

Ég vil áskilja mér þann rétt að koma hér með fyrirspurnir til framkvæmdarvaldsins og það eru köld skilaboð frá hv. þingmanni til Austfirðinga, þegar við erum að hreyfa hér mjög þörfu máli, eins og ég gerði áðan, (Gripið fram í: … peninga.) og hér talar hann um peninga. Ég veit ekki betur en við höfum verið að tala um Sundabraut á hinu háa Alþingis. Er ekki ætlunin að fara í þá miklu framkvæmd? Ég veit ekki betur en að ráðherrar í ríkisstjórninni (Forseti hringir.) hafi einmitt upplýst það í fyrirspurnatíma af þessu tagi.