131. löggjafarþing — 123. fundur,  4. maí 2005.

Fjárframlög til Mannréttindaskrifstofu Íslands.

[13:41]

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Það er engu líkara en hæstv. utanríkisráðherra gangi um með olíubrúsa til að hella á það bál sem þegar er farið að loga á Alþingi vegna óánægju þingmanna, sérstaklega stjórnarandstöðunnar, vegna þeirrar óvissu sem skapast hefur um þinglokin og ómarkvissra vinnubragða af hálfu ríkisstjórnarinnar. Nú segir hæstv. utanríkisráðherra okkur að hann hafi miklar efasemdir um ágæti Mannréttindaskrifstofunnar yfirleitt og það sé hennar að sanna að hún hafi unnið verk sín vel.

Hæstv. forseti. Nú verður ekki vikist undan því að taka þessa umræðu á markvissan og skipulegan hátt. Ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn hefur neitað okkur um slíka umræðu. Fram hefur komið að fyrir liggur frumvarp í þinginu og hefur legið fyrir frá því í haust um viðbótarframlag til Mannréttindaskrifstofu Íslands. Ég hef ítrekað það á fundum með formönnum þingflokka og stjórn þingsins að málið verði tekið til umræðu. Þegar engin jákvæð viðbrögð urðu við því setti Vinstri hreyfingin – grænt framboð fram ósk um að utandagskrárumræða færi fram um málið. Hæstv. forsætisráðherra neitar og vísar á aðra ráðherra, þorir greinilega ekki að taka upp málið sem snertir að sjálfsögðu ríkisstjórnina alla og er á ábyrgð hennar allrar. Það er krafa okkar að það frumvarp sem hefur beðið frá því í haust um málefni Mannréttindaskrifstofunnar verði rætt fyrir þinglok.