Stofnun hlutafélags um síldarútvegsnefnd og stofnun sjóða í þágu síldarútvegs.
Jón Gunnarsson (Sf) (andsvar):
Frú forseti. Ég óskaði eftir því að fá að veita andsvar við ræðu hv. síðasta ræðumanns en sökum kliðs í salnum heyrði ég lítið af fyrri hluta ræðu hans. Mér sýndist þó að hann færi að mestu yfir það nefndarálit sem liggur fyrir í þessu máli.
Eins og fram kemur hjá honum ritar sá sem hér stendur undir álitið með fyrirvara. Hann snýr að því að þarna er verið að taka sjóð sem varð til þegar síldarútvegsnefnd var lögð niður með lögum á árinu 1998 og breyta tilgangi hans. Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun en nú er verið að breyta tilgangi hans á þann veg að ekki eru lengur kvaðir á honum að hann styrki eingöngu vöruþróunar- og markaðsstarf í síldarútveginum.
Mig langar að spyrja hv. formann sjávarútvegsnefndar sem hér mælti fyrir áliti nefndarinnar hvort hann telji eðlilegt og sjálfsagt í svona dæmum að menn taki sig til og breyti með lögum tilgangi sjóðs sem verður til af fjármunum ákveðins útvegs, eða hluta útvegs, eins og hér er verið að gera. Ég veit að sjóðurinn er sjálfseignarstofnun og hefur stjórn og svo virðist vera sem ástæðan fyrir því að þetta kom upp núna sé sú að stjórninni þyki ekki næg verkefni sem hægt er að styrkja.
Ég spyr hv. formann sjávarútvegsnefnar hvort hann telji eðlilegt að verði fjármunir til í einni grein verði þeim eytt annars staðar eins og hér er verið að gera ráð fyrir með þessari breytingu á lögum.