131. löggjafarþing — 123. fundur, 4. maí 2005.
Stofnun hlutafélags um síldarútvegsnefnd og stofnun sjóða í þágu síldarútvegs.
583. mál
[14:05]
Frsm. sjútvn. (Guðjón Hjörleifsson) (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég held að hér séu menn að fara að víkka starfsemi sjóðsins, afla nýrra markaða fyrir síldarafurðir, en það var rætt töluvert í nefndinni hvort þetta ætti yfirleitt að falla undir hana þar sem þetta væri sjálfstæður sjóður þar sem fjármagn kæmi annars staðar frá. Það er eðlilegt að þetta mál verði þá tekið upp síðar og það má alveg deila um aðkomu okkar að því. Lögin eru hins vegar til staðar og því erum við að gera þetta.