131. löggjafarþing — 123. fundur, 4. maí 2005.
Stofnun hlutafélags um síldarútvegsnefnd og stofnun sjóða í þágu síldarútvegs.
583. mál
[14:54]
Frsm. sjútvn. (Guðjón Hjörleifsson) (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég taldi eðlilegt að gera grein fyrir þessari leiðréttingu hjá fjárlagaskrifstofu varðandi mismun á eigin fé sjóðsins í framsöguræðu minni.
Ég sagði í andsvari áðan að við hefðum tekið út þau mál sem ríkisstjórnin hefur verið með. Störfum í sjávarútvegsnefnd er ekki lokið, ég minntist ekki á það. Það verða haldnir fundir og farið yfir umsagnir um þau mál sem ekki er búið að afgreiða. Svo verður bara að koma í ljós hvort þau verða afgreidd úr nefnd eða ekki.