131. löggjafarþing — 124. fundur,  6. maí 2005.

Landbúnaðarstofnun.

700. mál
[18:00]

Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):

Frú forseti. Umsögn kom um frumvarpið frá Neytendasamtökunum og mig langar að fá upplýsingar um hvort hv. landbúnaðarnefnd hafi ekkert gert með þá umsögn. Þar er gagnrýnt að verið sé að vista matvælaeftirlit beint undir atvinnuvegaráðuneyti í stað þess að það væri hjá óháðu ráðuneyti. Það væri fróðlegt að fá að heyra hvað formanni landbúnaðarnefndar finnst um það.