Landbúnaðarstofnun.
landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Eitt er rétt í ræðu hv. þingmanns að hagur neytenda og bænda fer saman. Það skilur sá er hér stendur, það skilja bændurnir og það skilja Neytendasamtökin í vaxandi mæli og þau hafa átt prýðilegt samstarf við þann er hér stendur.
Hvað Matvælastofnun varðar, sem ekki hefur verið stofnað til enn, þá er það svo í sumum löndum, og ég nefni Noreg sem dæmi og fleiri lönd, að þar er einmitt talið mikilvægt að atvinnugreinin frá a til ö beri ábyrgð á sér, eftirlitið og ábyrgðin fari saman, að landbúnaðarvaran sem kemur frá bóndanum, ábyrgðin frá haga í maga, sé á sömu hendi til þess að þar geti verið bæði þekking og samstarf og öryggi. Auðvitað kemur vel til greina að Matvælastofnun heyri undir landbúnaðarráðuneytið og væri kannski langeðlilegast að mínu viti að hún yrði staðsett hér.
Hvað varðar þá eilífu tuggu sem kemur fram hjá hv. þingmanni að landbúnaðarráðherra fækki sláturhúsum þá er það rangt. Sláturhúsin lentu í miklum vandræðum og bændurnir sjálfir. Þar hefur verið hagrætt, það hafa þeir sjálfir gert og þarf ekki meira um það að tala. Ef héraðsdýralæknar gagnrýna það verkefni sem þeir fara með, þeir fara með sjúkdómavarnir og þeir bera fulla ábyrgð á sjúkdómavörnum í kringum búfénaðinn, það er þeirra verkefni, ef þeir eru farnir að senda umsagnir þar sem þeir standa ekki sína vakt er full ástæða til að rannsaka störf þeirra. Og kannski er það svo, eins og hv. þingmaður ýjaði að, að einmitt þessi stofnun, sem hér er að verða stærri og sterkari, á kannski ekki síst eftir að endurskipuleggja þessi störf (Forseti hringir.) og taka fastar á þeim hvað þetta varðar.