Afgreiðsla mála fyrir þinghlé.
Ögmundur Jónasson (Vg):
Hæstv. forseti. Í áætlunum um störf Alþingis var ekki gert ráð fyrir að fundað yrði í dag, á laugardegi. Þessi fundur er vitnisburður um óöguð vinnubrögð ríkisstjórnarinnar. Enn liggur fyrir þinginu fjöldinn allur af mjög umdeildum málum. Ég nefni skattlagningu á orkufyrirtæki sem er mótmælt af nánast öllum þeim aðilum sem til þekkja í landinu, sveitarfélögunum, verkalýðshreyfingunni og Neytendasamtökum. Allir þessir aðilar gagnrýna það frumvarp. Ég nefni frumvarp til laga um samkeppnismál sem er gagnrýnt af verkalýðssamtökunum, Neytendasamtökum, öllum þeim aðilum sem að málinu koma og til þeirra þekkja. Þetta er hefndarlöggjöf gagnvart samkeppnisyfirvöldum fyrir hve vel þau stóðu sig og hafa staðið sig í olíumálinu og öðrum málum þar sem þau hafa látið til sín taka.
Hæstv. forseti. Við verðum að fá hreinar línur um áætlanir ríkisstjórnarinnar. Hvaða frumvörp ætlar hún að reyna að keyra í gegnum þingið? Og við þurfum að fá svör við óskum okkar um að samið verði um þinglokin.
Ég beini þeirri spurningu til hæstv. forseta: Hve lengi er áætlað að þessi þingfundur standi í dag? Það er óeðlilegt að hann standi lengur en til klukkan fjögur eða fimm eða þar um bil. Samkvæmt venju tíðkast ekki langir fundir á laugardögum. En við þurfum að fá um þetta skýr svör af hálfu stjórnar þingsins.