Samkeppnislög.
Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Lúðvík Bergvinsson) (Sf) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég rakti í máli mínu að fullyrðingar hv. þingmanns, sem hafa ítrekað hljómað, um að núverandi fyrirkomulag sé flókið eru einfaldlega rangar. Það er einfaldlega um að ræða tvö stig, þ.e. Samkeppnisstofnun og samkeppnisráð og hins vegar áfrýjunarnefnd. Það er nákvæmlega sama fyrirkomulag og nú eru uppi hugmyndir um þannig að hv. þingmaður verður að setja sig aðeins betur inn í þetta en svo að setja fram þessi sjónarmið.
Hvað hitt atriðið varðar, sem lýtur að því að rétt sé að taka út ákvæði af því að því hafi aldrei verið beitt, þá eru þau sjónarmið afar athyglisverð. Í því ljósi ætti væntanlega að taka út úr lögum ákvæði sem ekki reynir á. Við hljótum að fagna því að ekki hafi reynt á þetta ákvæði. Við hljótum að telja að forvarnagildi þess sé það mikið að það reyni ekki á það. En að það sé einhver lausn að taka það út úr lögunum og það sé til að styrkja lögin gengur vitaskuld ekki upp á nokkurn hátt. Það eru engin rök fyrir því að halda því fram að af því að ekki hafi reynt á tiltekin tæki eða tiltekin ákvæði í lögunum, sem voru sett í lögin á sínum tíma til að tryggja virka samkeppni, og af því það hafi ekki fallið dómar vegna þeirra, af því að menn hafi ekki fengið sektir eða breytingar verið gerðar á skipulagi fyrirtækja í kjölfarið, þá sé rétt að taka þau út.
Kannski er veruleikinn sá að tilvist þessa ákvæðis geri það að verkum að fyrirtæki og stjórnendur fyrirtækja virði þessar reglur. Það er kannski kjarni málsins, nema að draga megi þá ályktun af málflutningi hv. þingmanns að þar sem ekki reyni á reglurnar þá hljóti þær að vera ónýtar.