Samkeppnislög.
Sigurjón Þórðarson (Fl) (andsvar):
Frú forseti. Það eru því miður kaldar staðreyndir sem framsóknarmenn verða að horfast í augu við að Neytendasamtökin gerðu alvarlegar athugasemdir við þetta frumvarp sem Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn vilja gera að lögum. Þó að menn tali hér fallega um að tryggja eigi hag neytenda er það staðreynd að í engu er tekið tillit til þeirra athugasemda sem samtök neytenda gera við frumvarpið. Mér finnst það mjög alvarlegt.
Hér hefur komið fram að framsóknarmenn hafa borið sig aumlega undan þeirri umræðu sem hlýtur að koma upp, þeirri hreinskilnu umræðu um að þetta frumvarp sé mögulega hefndaraðgerðir. Sú umræða kemur í kjölfarið á olíusamráðsspillingarmálinu sem tengist Framsóknarflokknum beint. Þá á ég við að Olíufélagið Esso tengist með beinum hætti inn í Framsóknarflokkinn. Nú þekkir hv. þingmaður betur en ég innviði Framsóknarflokksins og hún ætti að vita þetta. Þetta er einmitt umræða sem er vert að taka á, og þetta frumvarp er ekki til þess fallið að ráða bót á þessu. Það er jafnvel mikil hætta á því að það hafi þveröfug áhrif. Það er einmitt það sem Neytendasamtökin, sem hv. þingmaður talar um að hún ætli að tryggja, þ.e. hag neytenda, eru að benda á, að þetta frumvarp muni alls ekki tryggja hag neytenda.
Ég skora á hv. þingmann að fara enn og aftur yfir umsögn Neytendasamtakanna og sjá að frumvarpið þarf að ganga í gegnum vissar endurbætur, það þarf að bæta það til að tryggja hag neytenda.