Samkeppnislög.
Dagný Jónsdóttir (F) (andsvar):
Virðulegi forseti. Það er gott að ég þekki innviði Framsóknarflokksins betur en hv. þm. Sigurjón Þórðarson því að hann virðist svo sannarlega ekki þekkja þá þó að honum verði mjög tíðrætt um Framsóknarflokkinn hér í þingsalnum (Gripið fram í.) og hef ég ekki heyrt nema eina ræðu hjá honum, þ.e. eitt andsvar, síðan ég settist inn á þing þar sem hv. þingmaður minntist ekki á Framsóknarflokkinn.
Ég verð að segja að það er athyglisvert að Frjálslyndi flokkurinn skuli taka undir málflutninginn varðandi hefndaraðgerðir. Mér þykja þetta vera mjög alvarlegar ásakanir. (SigurjÞ: Já.) Þetta eru mjög alvarlegar ásakanir. Og enn og aftur fer ég fram á rök. Ég hef ekki heyrt nein rök hér í dag fyrir þessum ásökunum. (Gripið fram í.) Þetta olíumál var að sjálfsögðu mjög umfangsmikið og þar stóðu samkeppnisyfirvöld sig vel. Ég fór yfir það áðan að með þeim breytingum sem hv. efnahags- og viðskiptanefnd gerir erum við að tryggja það að stjórnin muni að sjálfsögðu ekki stoppa af slíkar rannsóknir.
Það er leitt að hv. þingmaður skuli ekki vilja hlusta á svarið, (Gripið fram í.) en ég vil bara segja að þetta eru ósmekklegar ásakanir á Framsóknarflokkinn. Við erum hér að hlúa að neytendavernd, við erum að efla samkeppnisyfirvöld í landinu sem að sjálfsögðu verður til þess að hag neytenda verður betur borgið.
Ég held að ákveðnir flokkar ættu frekar að líta í eigin barm en að vera að ausa hér skömmum og svívirðingum og ásökunum, órökstuddum, yfir Framsóknarflokkinn, og stíga t.d. fram og birta bókhald sitt o.fl. sem ég hef ekki séð. Að segja hér að (Gripið fram í.) Framsóknarflokkurinn sé háður olíufélögunum í landinu er rangt.