131. löggjafarþing — 125. fundur,  7. maí 2005.

Samkeppnislög.

590. mál
[18:18]

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Lúðvík Bergvinsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég var einn þeirra sem biðu með eftirvæntingu eftir því að hæstv. viðskiptaráðherra mundi fjalla um þetta tiltekna mál og upplýsa okkur um sjónarmið sem við höfum ekki fengið og reynt að rökstyðja þá leið sem ætlunin er að fara. Það kom ekkert fram í máli hæstv. ráðherra, ekki nokkur skapaður hlutur sem gerir það að verkum að nokkur leið sé að draga þá ályktun að hæstv. ráðherra sé á réttri leið. Reyndar mun ég ekki í stuttu andsvari geta svarað öllu því sem fram kom hjá hæstv. ráðherra, en hins vegar vísa ég því alfarið á bug að ég hafi farið með rangfærslur áðan, enda fékk ég það staðfest í samtali við formann áfrýjunarnefndar samkeppnismála um að svo var ekki.

Ég vil þó segja það í umræðunni, virðulegi forseti, að niðurstaða frumvarpsins er nákvæmlega það sem Samtök atvinnulífsins pöntuðu í eigin frumvarpi frá árinu 2002 og nákvæmlega þær hugmyndir sem hæstv. ráðherra er að fylgja fram á hinu háa Alþingi.