Samkeppnislög.
viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Mér er legið á hálsi fyrir að vera málpípa atvinnulífsins og skammast mín ekki fyrir það. Ég hef hins vegar lagt áherslu á að viðskiptalífið þarf að njóta trausts og út á það gengur málið. Það gengur út á að viðskiptalífið þarf að vinna samkvæmt reglum. Við verðum að hafa sterk samkeppnisyfirvöld til að takast á við erfið mál sem upp geta komið þegar fyrirtæki fara ekki að lögum. Verið er að styrkja lagagrundvöllinn með frumvarpinu, verði það að lögum, og það skiptir mjög miklu máli. Það er ekki allt í lagi í íslensku viðskiptalífi, það er bara þannig, því miður. Það eru að gerast stórkostlegir hlutir, flest allir jákvæðir, en það er líka hægt að finna þar neikvæða þætti og við verðum að hafa lög í landinu til að geta tekið á þeim og stofnanir sem hafa það hlutverk verða að hafa fjármagn til að geta unnið verkefni sín.