Samkeppnislög.
Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Lúðvík Bergvinsson) (Sf) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ekki mun gefast tími til að fara yfir allt sem hæstv. ráðherra sagði. Ég vil þó leiðrétta eitt sem hæstv. ráðherra sagði, að núverandi forstjóri Samkeppnisstofnunar var skipaður með lögum þegar samkeppnislögin voru sett. Þar af leiðandi var hann ekki skipaður af ráðherra, það var ákveðið í lögum að hann skyldi taka við.
Í öðru lagi lögðu Samtök atvinnulífsins mikla áherslu á það í skýrslu 2002 að 17. gr. c færi út, að samkeppnisráð yrði fellt niður, leitarúrræðin og málshöfðunin væru ekki til staðar. Ekki þarf að fara mörgum orðum um það í umræðunni að orðið er nákvæmlega við þeim óskum nú, en það er ekki orðið við óskum Neytendasamtakanna. Það er ekki orðið við óskum launþega í landinu. Ekki er orðið við óskum helstu sérfræðinga á sviði samkeppnismála í landinu. Nei, það er orðið við óskum allt annarra.
Virðulegi forseti. Sem betur fer mun umræðan halda (Forseti hringir.) áfram og þá mun gefast miklu betra tækifæri til að fara yfir það sem hæstv. ráðherra sagði.