131. löggjafarþing — 126. fundur,  9. maí 2005.

Samkeppnislög.

590. mál
[12:19]

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Lúðvík Bergvinsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Birgir Ármannsson hefur stundað það í þessari umræðu að koma hér upp og gefa málflutningi manna einkunn. Þess vegna hlýddi ég með mikilli athygli á ræðu hv. þingmanns og fannst reyndar um tíma hún vera heldur tætingsleg, þ.e. í þeim skilningi að hann hefði látið af sinni frjálshyggjubarnatrú, að hv. þingmaður væri eiginlega horfinn frá því erindi sem hann hefur stundum gefið sig út fyrir að eiga á þingi, þ.e. að losa um allar hömlur og skapa hér frelsi einstaklingsins til athafna eins og kostur er. Um tíma reyndi hann að réttlæta lengi vel setningu reglna á þessu sviði. En síðan opnaðist smágátt og hv. þingmaður lýsti því yfir að honum fyndist kannski fulllangt gengið í þessum efnum. Mér fannst ýmislegt í hans málflutningi gefa tilefni til þess að menn muni nú halda einhverjar fleiri ræður í þessu tiltekna máli.

En mig langaði að spyrja hv. þingmann vegna þess að í sjónvarpsþætti í morgun lýsti hæstv. viðskiptaráðherra því yfir að brottfelling þess ákvæðis sem hv. þingmanni var tíðrætt um þýði óneitanlega veikingu samkeppnislaga frá gildandi lögum. Hæstv. viðskiptaráðherra bætti við og sagði að það gengi ekki að stofnun úti í bæ hafi hvaða vald sem er til þess að grípa til aðgerða. Mig langaði að spyrja hv. þingmann hvort þau séu ekki samstiga í þessu tiltekna máli. Hæstv. viðskiptaráðherra sem er nú höfundur þessa frumvarps, höfundur þessara hugmynda, lýsir því yfir að þessi breyting þýði veikingu á reglunum. Hvaða sjónarmið eru það þá sem hv. þingmaður hefur fundið í þessu tiltekna máli eða var það einfaldlega þannig að hæstv. viðskiptaráðherra nennti ekki að halda þessum pótemkíntjöldum fyrir framan frumvarpið öllu lengur?