131. löggjafarþing — 126. fundur,  9. maí 2005.

Samkeppnislög.

590. mál
[12:21]

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. viðskiptaráðherra er að sjálfsögðu miklu betur fallin til þess að tjá sig um ummæli sem hún hefur látið falla og ég hef ekki heyrt nema í endursögn hv. þm. Lúðvíks Bergvinssonar. Ég veit ekki í hvaða samhengi þau ummæli féllu eða hvaða spurningu hæstv. viðskiptaráðherra var að svara þegar hún sagði þetta, ef hún sagði þetta með þessum hætti. Ég ætla ekkert að tjá mig um það.

Ég lýsti hins vegar þeirri skoðun minni í ræðu minni hér áðan nokkuð ítarlega að ég teldi að í niðurfellingu c-liðar 17. gr. frumvarpsins fælist ekki raunveruleg veiking á lögunum og ég fór ítarlega yfir það að þetta ákvæði sem aldrei hefur verið beitt það fæli ekki í sér nein raunhæf úrræði fyrir samkeppnisyfirvöld þannig að sú skoðun stendur af minni hálfu að niðurfelling c-liðar 17. gr. feli ekki í sér neina veikingu á samkeppnislögunum og ég stend við það.

Varðandi hins vegar önnur ummæli hv. þm. Lúðvíks Bergvinssonar sem að jafnaði er óspar á að gefa mönnum einkunnir í sambandi við ræðuhöld í þinginu og allt í lagi með það þá verð ég að segja að það er ekkert ósamræmi í því að vera í þeirri stöðu sem ég er í hér í þinginu, þ.e. að vera talsmaður frjáls markaðar en styðja á sama tíma leikreglur og úrræði fyrir yfirvöld þegar aðilar fara ekki að leikreglunum. Ég upplifi mig ekki í neinum vandræðum með þá stöðu vegna þess að meginreglan á auðvitað að vera frelsi í viðskiptum. Meginreglan á að vera sú að þeir sem eru í atvinnurekstri stýri sínum fyrirtækjum án beinna fyrirmæla frá stjórnvöldum. Hins vegar ef menn brjóta gegn leikreglunum þá eiga að vera til úrræði til að bregðast við því.