131. löggjafarþing — 126. fundur,  9. maí 2005.

Samkeppnislög.

590. mál
[12:36]

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Bara þannig að afstöðu Lögmannafélagsins sé til haga haldið í þessari umræðu og orð hv. þm. Jóns Bjarnasonar verði ekki eini vitnisburðurinn um afstöðu þess félags til frumvarpsins (Gripið fram í.) þá er rétt að fram komi að laganefnd Lögmannafélagsins, sem fjallaði um málið, telur að þær breytingar sem boðaðar eru á skipulagi samkeppnismála séu að mörgu leyti til bóta. Þetta er eina atriðið sem þeir gera athugasemdir við. (Gripið fram í.) Já, breytingarnar eru víðtækar og laganefnd Lögmannafélagsins telur að þær til bóta, að þessu atriði undanskildu.

Ég gerði grein fyrir því í ítarlegu máli áðan að með því að setja í lögin, eins og gert er í breytingartillögum meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar, að settar verði starfsreglur og starfslýsing sem skýri málið, þá held ég að komið verði í veg fyrir þá flækju sem laganefnd Lögmannafélagsins hefur áhyggjur af varðandi þetta tiltekna þrönga atriði.

Varðandi forstjórann þá er hann eins og aðrir forstjórar ríkisstofnana ráðinn tímabundið og verður það samkvæmt þessu frumvarpi, eins og verið hefur áður.