131. löggjafarþing — 128. fundur,  10. maí 2005.

Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.

721. mál
[00:18]

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er eðlilegt að formaður samgöngunefndar, hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson, sem ótrúlegt en satt er þingmaður Reykjavíkur, reyni að beina ljósinu eitthvert annað en að þeirri einföldu staðreynd að hann er hér sem formaður samgöngunefndar að skila samgönguáætlun inn á Alþingi þar sem skattpeningar okkar Reykvíkinga eru meira og minna teknir og settir í verkefni annars staðar á landinu en í engu sinnt brýnum þörfum hér í borginni.

Ég held hins vegar að þessar hártoganir hv. þingmanns sýni ljóslega að við þurfum að flytja þetta vegagerðarverkefni frá ríkinu því að ríkið er ekki fært um að annast það. Hv. þingmaður er ekki fær um það og hæstv. samgönguráðherra er ekki fær um það. Það er staðið í eilífum deilum um skipulagsmál við yfirvöld hér á svæðinu, á Akranesi, í Hafnarfirði og þannig getum við áfram talið sveitarfélögin.

Þessir fjármunir eiga einfaldlega að fara beint til sveitarfélaganna, skattpeningar okkar Reykvíkinga eiga að fara beint til Reykjavíkurborgar og hún á sjálf að verja því fé og skipuleggja þær framkvæmdir, enda þarf hún ekki milligöngu hæstv. samgönguráðherra Sturlu Böðvarssonar um framkvæmdir í borginni. Það er málefni sem við Reykvíkingar getum einfaldlega átt við okkar eigin borgarstjórn og ráðið fram úr alveg milliliðalaust af hálfu þingmanna Sjálfstæðisflokksins, svo sem eins og hæstv. samgönguráðherra Sturlu Böðvarssonar, og færi best á því að Reykjavík yfirtæki einfaldlega samgöngumálin af ríkinu því að ríkið hefur reynst getulaust til að halda utan um þau.