131. löggjafarþing — 128. fundur,  10. maí 2005.

Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.

721. mál
[01:12]

Birkir Jón Jónsson (F):

Frú forseti. Það er orðið áliðið kvölds en það er kannski eðlilegt þar sem hér er undir viðamikill málaflokkur sem er samgönguáætlun til næstu fjögurra ára. Margt hefur komið fram í máli þingmanna í dag. Ég vil fyrst beina orðum til hæstv. forseta þar sem ég átti í andsvörum við hv. þm. Gunnar Birgisson og hv. þm. Kristin H. Gunnarsson fyrr í kvöld og spyr hvort þeir séu í húsi.

(Forseti (JBjart): Forseta sýnist að hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson sé í húsi en ekki hv. þm. Gunnar Birgisson.)

Hæstv. forseti. Eins og ég nefndi í upphafi ræðu minnar er langt liðið kvölds og ég virði það við hina ágætu hv. þingmenn ef þeir eru ekki lengur í húsi og tel að forföll þeirra séu mjög eðlileg. En ástæða þess að ég spyr hæstv. forseta að þessu er sú að ég átti í andsvörum við hv. þingmenn fyrr í kvöld út af ákveðnu málefni sem snertir samgönguáætlunina og taldi mig ekki fá svör við þeim spurningum sem ég beindi til hv. þingmanna, en ég mun áskilja mér rétt til að reifa þau sjónarmið sem ég nefndi í andsvörum mínum en taldi mig ekki fá svör við og fara betur yfir það málefni sem ég áður nefndi.

Hæstv. forseti. Það er mjög eðlilegt að tilfinning sé í mönnum þegar rætt er um svo viðamikið mál sem vegamál eru. Við búum í víðfeðmu og stóru landi og mjög mörg aðkallandi verkefni á sviði vegamála eru víða um land. Samgöngumál er trúlega sá málaflokkur sem hefur haft og mun hafa hvað mest áhrif á þróun byggðar, hvort sem það er á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni, því ef samgöngur eru ekki í viðunandi horfi er ljóst að slíkt veikir grundvöll viðkomandi byggðarlaga.

Ég er líka sammála þeim hv. þingmönnum sem hér hafa talað, að það er auðvitað nauðsynlegt að hér sé hæfilegt jafnvægi í þeim efnum, t.d. í fjárveitingum á milli höfuðborgar og landsbyggðar, en taka verður tillit til ýmissa þátta. Það er ekki nóg að taka tillit til íbúafjölda eingöngu, við þurfum líka að horfa á lengdir vega og stærð kjördæma. Reyndar er það mjög dapurlegt í þessum málaflokki hvað umræða um vegamál verður oft kjördæmatengd. Ég segi að það sé ekki endilega alltaf málefnunum til framdráttar.

Hæstv. forseti. Menn hafa rætt hér mikið um hávær mótmæli sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu við fyrirhugaðri samgönguáætlun. Það er mikið rétt, fjölmiðlar í landinu hafa gert þeim mótmælum ágætlega skil, en það er nú staðreynd málsins og gott að upplýsa það ef einhverjir fjölmiðlamenn eru að hlusta, að við hv. þingmenn erum að fá ályktanir frá sveitarfélögum um allt land nær á hverjum degi, sérstaklega í aðdraganda þeirrar vegáætlunar sem við erum að ræða, og kallað er á mjög mörg brýn verkefni. Miðað við umræðuna undanfarna daga í fréttatímum útvarps og sjónvarps mætti ætla að ástand mála væri allgott á landsbyggðinni en við, a.m.k. þingmenn landsbyggðarinnar og örugglega hæstv. samgönguráðherra hafa fundið fyrir því að íbúar víða um land knýja á um mjög mörg aðkallandi verkefni á sviði vegamála. Því miður hafa þær raddir kannski ekki náð eyrum fjölmiðla eins og ástæða væri til.

Hæstv. forseti. Þegar ég tala um gagnrýni sveitarfélaga á okkur þingmenn höfum við þingmenn t.d. í Norðausturkjördæmi fengið ábendingar hvað varðar Hófaskarðsleið að ganga mætti hraðar í þeim efnum. Það er mjög mikilvægt mál til að tengja byggðirnar á norðausturhorninu og alltaf má betur gera. Það er með þennan málaflokk eins og allt annað að ekki er hægt að gera allt í einu. Við fögnum til að mynda mjög mörgum áföngum eins og Dettifossvegi, sem mun hafa gríðarlega mikilvæg áhrif á ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslu sem er sívaxandi þáttur í atvinnulífi Þingeyinga og mun á komandi árum styrkja byggð á því svæði gríðarlega.

Þá er ekki úr vegi að nefna, hæstv. forseti, aðra framkvæmd sem mundi styrkja þetta svæði allverulega. Því miður eru mjög takmörkuð skref gengin í þá átt í þeirri áætlun sem hér um ræðir en það er gerð Vaðlaheiðarganga, sem menn munu vonandi fara í með einkaframkvæmd, sem mun tengja Eyjafjarðarsvæðið og Þingeyjarsýslurnar og gera það að einu heilsteyptu atvinnu- og þjónustusvæði. Þar njóta bæði Þingeyingar og Eyfirðingar góðs af og yrði mjög hagkvæm framkvæmd, rétt eins og flestar þær jarðgangaframkvæmdir sem við erum að fara í. Þetta eru mannvirki sem munu standa um árhundruð og nýtast viðkomandi samfélögum gríðarlega. Við sleppum þar að fara yfir mjög erfiða og hættulega fjallvegi og ég fullyrði að framkvæmd eins og Vaðlaheiðargöng mun spara mörg mannslíf á komandi árum og áratugum þegar sú ágæta framkvæmd verður afstaðin.

Hæstv. forseti. Ég nefndi það áðan að margir hefðu rætt um hlutfallslega skiptingu vegafjár á milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðarinnar og talað um að hér byggju tveir þriðju landsmanna og þá ættu tveir þriðju hlutar af vegafénu að renna hingað, eða hátt í það. En eins og hæstv. samgönguráðherra benti á í sjónvarpsþætti Kastljóssins í gærkvöldi eru þjóðvegir á höfuðborgarsvæðinu einungis 144 kílómetrar. Ef við horfum til annarra kjördæma, eins og kjördæmis hæstv. samgönguráðherra, þá eru þar um 5.000 kílómetrar, hátt í fjörutíufalt fleiri en á höfuðborgarsvæðinu. Í norðausturkjördæmi, þaðan sem ég kem eru um 4.000 kílómetrar, um þrjátíuföld lengri vegalengd. Þess vegna er ekki hægt að tala um það að sanngjarnt sé að deila hlutfallslega vegafé á íbúafjölda. Við hljótum að þurfa að taka tillit til lengdar vega í viðkomandi kjördæmi. Við þekkjum það sem keyrum víða um land, á mörgum stöðum, sérstaklega hvað tengivegina og sveitavegina varðar, þá keyrum við þar um forarsvað og þar þarf að bæta verulega úr. En verkefnin eru mörg og það er því miður ekki hægt að framkvæma allt í einu, því miður er það sannleikur málsins, en auðvitað reynum við að forgangsraða í þessum efnum.

Hæstv. forseti. Það er margt um að vera í vegamálum á höfuðborgarsvæðinu. Nú eru miklar framkvæmdir í gangi í Mosfellsbæ og mikil vinna á sér stað við færslu Hringbrautar. Þær framkvæmdir hafa m.a. leitt til þess undanfarin missiri að umferðarþröng verður meiri á álagstímum vegna framkvæmdanna og þegar þeim verður lokið mun vonandi létta umferðarálagi af viðkomandi stöðum á höfuðborgarsvæðinu, en það þarf að halda áfram.

Hæstv. forseti. Ég beindi þeirri fyrirspurn hér á dögunum til hæstv. forsætisráðherra, hvort honum fyndist koma til greina að við mundum verja hluta söluandvirðis Símans til þarfra verkefna á borð við samgöngumál. Hæstv. forsætisráðherra svaraði þeirri spurningu á þá leið að honum fyndist koma sterklega til greina að verja hluta af söluandvirði Símans til gerðar Sundabrautar. Það er gríðarlega mikilvægt mál og er ekki eingöngu málefni höfuðborgarbúa, stórkostlegt mál fyrir íbúa Vesturlands og Norðurlands að stytta leiðina til Reykjavíkur sem því nemur. Það er heldur engin smáframkvæmd. Ekki er búið að hanna þá framkvæmd endanlega. Það á eftir að ljúka ákveðinni hönnunarvinnu við það verk og trúlega, ef má marka orð hæstv. samgönguráðherra, verður hægt að bjóða þá framkvæmd út árið 2007.

Ef við setjum þá framkvæmd í samhengi við annað sem við erum að gera í samgöngumálum munum við á næstu fjórum árum eyða 23,7 milljörðum kr. við vegagerð, við gerð stofnbrauta, í stofnkostnað í vegagerð. Hvað erum við að tala um þegar rætt er um lagningu Sundabrautar? Við erum að tala um kannski 10–14 milljarða kr. sem verður sérverkefni fyrir utan vegáætlun. Við erum að tala þar um hátt í 50% af vegafé í vegagerð til næstu fjögurra ára. Hér er um gríðarlegt verkefni að ræða sem mun nýtast íbúum höfuðborgarsvæðisins vel og íbúum landsbyggðarinnar. Það er markmið ríkisstjórnarinnar að ráðast í þá framkvæmd sem er mjög mikilvægt málefni og við þingmenn landsbyggðarinnar munum vonandi styðja rétt eins og þingmenn höfuðborgarsvæðisins. Þar er því um mjög stórt verkefni að ræða.

Ég er sammála mati hæstvirtra ráðherra að mjög erfitt er að setja slíka framkvæmd inn á vegáætlun þegar ekki er búið að klára endanlega hönnun verksins og menn vita kannski hugsanlega ekki hver endanlegur kostnaður er. Hér á að vera um sérverkefni að ræða og við munum í framhaldi af markaðsvæðingu Landssímans geta farið í verkefni á borð við Sundabraut.

Hæstv. forseti. Ég ætla nú að víkja að aðalhluta ræðu minnar hér í kvöld, sem fjallar um Héðinsfjarðargöngin og hv. þm. Gunnar Birgisson og hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson gerðu að verulegu umtalsefni í ræðu sínum. Mér finnst ég vera knúinn til þess að ræða það mál örlítið. Því miður, eins og ég sagði fyrr í ræðu minni, fékk ég ekki fullnægjandi svör í þeim andsvörum sem ég veitti hv. þingmönnum, og ég vil fara aðeins yfir það í örstuttu máli.

Hv. þm. Gunnar Birgisson boðaði það með miklum látum að hann mundi gera nýja samgönguáætlun og hann mundi leggja fram nýja samgönguáætlun á þingi. Ég hugsaði með mér þegar ég heyrði þetta, af því þetta á sér ekki mörg fordæmi, verður það þá ekki þannig í haust að ef mér líkar ekki við allt sem við framkvæmum í fjárlögum ríkisins, ég sit í fjárlaganefnd þingsins, á ég þá ekki að koma með mína fjárlagaáætlun? Ég verð að segja alveg eins og er að ég er ekki alltaf 100% sammála öllu sem stendur í fjárlögum íslenska ríkisins. Er það þá ekki bara þannig að ég ætti að koma hér upp sem alþingismaður með mínar fjárlagatillögur og þannig eigi það að vera með alla 63 þingmenn á Alþingi? Ég held að þingstörfin yrðu nú dálítið torsótt ef við mundum hafa þann háttinn á, þó við töluðum eingöngu um stjórnarliða sem mundu koma með slíkar tillögur fram. Þetta hefur ekki verið háttur núverandi ríkisstjórnar að koma fram með tillögur sem þessar. Við höfum afgreitt mál innan þingflokka okkar, en því miður var það lendingin að Gunnar ákvað að koma með þessar breytingartillögur sem fyrst og síðast snúa að einni framkvæmd að heitið getur, sem eru Héðinsfjarðargöng, og hv. þingmaður hefur samþykkt með atkvæði sínu hér á þingi í jarðgangaáætlun og vegáætlun 2000–2004. Þetta er staðreynd málsins.

Ég hef sagt að það kom mjög illa við íbúa við utanverðan Eyjafjörð þegar hæstv. ríkisstjórn ákvað að fresta framkvæmdum við Héðinsfjarðargöng. Þá var gert ákveðið samkomulag á milli ríkisstjórnarinnar, sem Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn eiga aðild að, og sveitarfélaganna við utanverðan Eyjafjörð að farið yrði í þessa framkvæmd og við mundum hefja framkvæmdir vorið 2006 og klára framkvæmdir vorið 2009. Ég hef sagt það áður að hv. þingmönnum hefði þá verið í lófa lagið þegar sú ákvörðun var tekin að standa þá upp og mótmæla kröftuglega. Hv. þingmenn hafa kosið að bíða fram að endurskoðun vegáætlunar með þau áhersluatriði sín þrátt fyrir að þeir hafi greitt þeim framkvæmdum atkvæði sitt hér fyrir nokkrum árum.

Mér finnst það mjög alvarlegt ef menn líta almennt svo á, hvort sem þeir eru alþingismenn eða sveitarstjórnarmenn, að samkomulag sem gert er á milli ríkis og sveitarfélaga, skriflegt samkomulag, skuli ekki vera pappírsins virði. Alveg sama hvort á í hlut sveitarstjórnarmaður eða alþingismaður. Hvert erum við þá komin í raunverulegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga á þessu sviði? Ég segi að þá er friður rofinn í þeim samskiptum, sem hefur nú verið allbærilegur í tíð núverandi ríkisstjórnar. Hann var reyndar ekki glæsilegur í tíð ríkisstjórnarinnar 1991–1995, þeir sem muna það, en í tíð núverandi ríkisstjórnar frá árinu 1995 hefur verið hæfilegur friður í samskiptum ríkis og sveitarfélaga og ef skriflegir samningar standast ekki í svona samskiptum, hvað stenst þá?

Þess vegna furða ég mig á því að menn skuli mælast til þess hér á Alþingi að menn gangi svo berlega á bak orða sinna, fyrir utan það hvað við erum búin að vekja væntingar hjá mörgu fólki í landinu sem hefur ákveðið að setjast að í þessum byggðarlögum og hefur framtíðarvæntingar hvað varðar framkvæmdir og framfarir sem munu eiga sér stað með tilkomu þessara ganga. Menn eru að gera þær væntingar þar af leiðandi að engu.

Ég sagði það líka, hæstv. forseti, við hv. þm. Gunnar I. Birgisson, að ég efaði ekki að hann væri mjög vel að sér almennt í vegamálum hér á landi og hann er trúlega einn af yfirburðamönnum á þingi í þeim efnum. Hins vegar er það staðreynd málsins að á fyrstu skrefum Gunnars Birgissonar í málflutningi sínum hvað varðar hin svokölluðu Fljótagöng, þá tillögu sem hann hefur gert, að gera jarðgöng frá Siglufirði út í Fljót, fór hann bara því miður rangt með fullt af staðháttum, sérstaklega í Fljótum, talaði jafnvel í öðru orðinu um það og sagði að menn ættu að skoða að gera göng undir Lágheiði. Það hefur engum manni dottið það í hug. Engum manni hefur dottið það í hug að gera sérstök göng undir Lágheiði í Fljótum. Aldrei. Reyndar fóru hv. þingmenn, hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson þó sérstaklega, að ræða um uppbyggingu Lágheiðarinnar sem framtíðarveg, sem tengingu á milli Fljóta og Ólafsfjarðar. Það er nú þannig að Skagfirðingar og Siglfirðingar, svonefndur Lágheiðarhópur, sveitarstjórnarmenn í viðkomandi sveitarfélögum, komst að þeirri niðurstöðu að það bæri að fara Héðinsfjarðarleiðina, ekki að byggja upp Lágheiði. Þetta er staðreynd málsins og veit ég til þess að forustumenn sem nú eru í dag í sveitarfélaginu Skagafirði áttu sæti í þessum Lágheiðarhópi og finnst mér það mjög mikilvægt innlegg í umræðuna að heimamenn hafa komið sér saman um þessa framkvæmd.

Ég spurði hv. þingmann líka: Hefur hann kynnt sér rannsóknir rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri hvað varðar þessa framkvæmd og þau samfélagslegu áhrif sem þessi framkvæmd mun hafa? Ég hef ekki fengið nein svör við því. Eða þá arðsemisútreikninga sem Vegagerðin er búin að gera hvað varðar þetta verkefni? Það var niðurstaða Vegagerðarinnar að það ætti að fara í þessa framkvæmd. (Gripið fram í.)

Það er mjög miður þegar hv. þingmenn koma svo upp í ræðustól Alþingis og segja að Vegagerðin kunni ekki sitt fag, að þeir séu fremri Vegagerðinni á þessu sviði. Ég veit að hv. þm. Gunnar Birgisson er mjög fær á sínu sviði. En mér heyrðist, miðað við hans málflutning á fyrstu stigum, að hann væri einfaldlega ekki búinn að kynna sér þetta mál nægilega vel til þess að mæla með þeirri Fljótaleið sem hann hefur nú mælt með. Sú Fljótaleið sem hann mælir nú fyrir er nú ekki sú leið sem Trausti Sveinsson hefur mælt fyrir því Trausti Sveinsson, bóndi á Bjarnagili í Fljótum, sem staddur er á þingpöllum, hefur mælt fyrir annarri leið sem gengur lengra, þ.e. að gera göng frá Siglufirði og inn í Fljót og svo frá Fljótum og inn í Eyjafjörð. Það er nú staðreynd málsins að hv. þingmenn ganga ekki jafnlangt og Trausti Sveinsson hefur barist fyrir ötullega á mörgum umliðnum árum.

Staðreynd málsins er sú að forustumenn ríkisstjórnarinnar hafa lofað þessari framkvæmd í góðri trú um að þeir þingmenn sem greiddu þessari framkvæmd upphaflega atkvæði sitt mundu standa við sitt. Hv. þingmenn hafa reyndar sagt að þeir hafi skipt um skoðun. En þeir hafa ekki svarað þeim spurningum sem við nokkrir hv. þingmenn höfum beint til þeirra hér í kvöld. Á að svíkja skriflegt samkomulag sem gert var á milli ríkis og sveitarfélaga í þessum efnum og hafa þessir aðilar kynnt sér í þaula þau rannsóknargögn sem ég hef vitnað til? Reyndar vil ég segja að ég tel mig hafa heyrt það á ræðu hv. þingmanns Kristins H. Gunnarssonar að hann er búinn að kynna sér þetta mál mjög vel. En það breytir samt því ekki að þessir aðilar hafa staðið að því að samþykkja þá framkvæmd sem vonandi verður samþykkt í þeirri vegaáætlun sem nú liggur hér fyrir.

Hæstv. forseti. Mig langar aðeins að víkja að ræðu Kristins H. Gunnarssonar því ég spurði hv. þingmann, en fékk ekki svar, hvort hann teldi að sú áætlun sem hann vitnar í í Fréttablaðinu í dag sé raunveruleg áætlun sem eigi að standast. Mig langar að vitna í þetta enn og aftur, með leyfi hæstv. forseta. Fyrirsögnin á þessu viðtali er Heldur ríkisstjórninni við efnið. Þar er sem sagt verið að vitna um það að hv. þingmaður er duglegur að halda hæstv. ríkisstjórn við efnið. Blaðamaðurinn spyr, með leyfi hæstv. forseta:

„Ertu aftur orðinn ósáttur við ríkisstjórnina?“

Þá segir hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson, með leyfi forseta:

„Ég segi það nú ekki. Ég var ekki að fara fram á neitt nýtt heldur aðeins að krefjast þess af ríkisstjórninni að hún héldi sig við það sem áður hefur verið samið um. Í jarðgangaskýrslunni er gert ráð fyrir þrennum göngum; fyrst milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar, þau göng eru að verða búin. Síðan á að bjóða út Héðinsfjarðargöng á þessu ári en ekkert bólar á ákvörðun um þriðju göngin sem eru göngin milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar“

Hæstv. forseti. Hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson talar um í þessu viðtali að ríkisstjórnin ætti að halda sig við það sem áður hefur verið samið um. Síðan kemur hv. þingmaður hér upp og talar gegn Héðinsfjarðargöngunum. Það er allt í lagi. Hv. þingmaður getur haft þá skoðun að það sé ekkert samkomulag um þetta. En ég spurði hv. þingmann jafnframt: Ef það er ekki samkomulag um umrædda framkvæmd sem ég hef gert að umtalsefni hér er þá eins ljóst að þá sé búið að semja um þriðju göngin sem eru göngin á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar og hv. þingmaður hefur nú verið að spyrja hæstv. samgönguráðherra um? Ég spyr. Samkvæmt málflutningi hans í kvöld þá er engin sátt um Héðinsfjarðargöng í þessari umræðu og hann hefur boðað andstöðu sína við þau. Þar með get ég ekki séð að neitt samkomulag sé í gildi.

Ég vil taka það skýrt fram að ég er ekki að leggjast gegn göngum á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar en mér finnst vert að hafa í huga að þingmaður Norðvesturkjördæmis, sem vill samstöðu um mjög miklar samgöngubætur í eigin kjördæmi, hlýtur að þurfa að horfa til fleiri þátta eins og að ná samstöðu um þá framkvæmd. Það gengur ekki að hér sé hver höndin upp á móti annarri og talað um framkvæmdir á landsbyggðinni í neikvæðum tón sem er ekki til þess fallið að styrkja framtíðarsamgöngubætur á landsbyggðinni. Ég vil halda þessu til haga.

Hæstv. forseti. Ég vil segja að lokum að hv. þingmenn hafa talað um það, og hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson sagði það í seinna andsvari sínu við mig, að kostnaður við Héðinsfjarðargöngin væri 8–13 milljarðar kr. Ég verð að segja eins og er að maður veit náttúrlega ekki hvort maður á að hlæja eða gráta yfir svona málflutningi. Það er búið að gefa það út að kostnaðaráætlun við verkið er 6,9 milljarðar kr. Framfarir við jarðgangagerð eru alltaf að aukast og það má alveg gera ráð fyrir því að tilboð við framkvæmdina verði undir kostnaðaráætlun. Ef við segjum að tilboðið verði 90% af kostnaðaráætlun þá erum við að tala um 6 milljarða rúma. Hv. þingmaður var kominn í háaloft í þingsal og farinn að tala um 13 milljarða kr. kostnað við framkvæmdina. Þetta er náttúrlega eingöngu til þess að afvegaleiða þá umræðu sem hér fer fram. Við verðum að halda umræðu um framkvæmdir sem þessar á málefnalegum nótum. Ég vil taka fram að hv. þingmaður gerði það að mestu leyti.

Hv. þingmaður hefur varpað miklum efasemdum um Siglufjarðarveg. Hann hefur sagt að sá vegur sé ónýtur og að hrynja í sjó fram. Hann hefur þó reynst okkur Siglfirðingum ágætlega og Fljótamönnum fram á þennan dag. Það kom fram í svari hæstv. samgönguráðherra á þingi í síðustu viku að kostnaður aukalega við þennan veg hvað viðhald varðar er 2–3 milljónir á ári. Það eru nú öll ósköpin. Ég hef heyrt miklu hærri tölur frá andstæðingum þessara framkvæmda, að tugi milljóna kosti að halda þessum vegi við. Það eru 2–3 milljónir kr. En hvað sögðu hv. þingmenn við þessum svörum samgönguráðherra og svörum Vegagerðarinnar? Þetta er bara ekkert að marka. Þeir bara blása á þetta. Menn geta ekki komið upp í ræðustól Alþingis og sagt að hæstv. samgönguráðherra eða Vegagerðin sem við treystum á m.a. við gerð þeirrar samgönguáætlunar sem við ræðum fari ekki með rétt mál. Slíkt er því miður ekki boðlegt.

Ég vonast til þess að við höldum áfram að bæta samgöngur, hvort sem það er á höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni. Það er mjög mikilvægt að við náum sátt um það. Ég tek undir með hæstv. samgönguráðherra að sú áætlun sem við ræðum hér er áætlun sátta. Ef við náum að fara í Sundabraut innan skamms þá erum við að auka framlög til stofnbrauta hér á landi um 50% miðað við framlög næstu fjögurra ára. Slíkt er gríðarlegt hagsmunamál, ekki síst fyrir Reykvíkinga, en líka íbúa landsbyggðarinnar.