Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.
Kristján L. Möller (Sf):
Virðulegi forseti. Við höfum í dágóðan tíma rætt um mál sem allir þingmenn hafa mikinn áhuga á, að sjálfsögðu, sem er þingsályktunartillaga um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2005–2008. Það er eðlilegt að hún sé vandlega rædd og farið í gegnum hana vegna þess að hún snertir okkur öll á margvíslegan hátt.
Í dag hefur, kannski eðli málsins samkvæmt, aðallega staðið yfir umræða um þann hluta samgönguáætlunar sem snýr að vegáætlun. En eins og hér hefur komið fram er margt meira í þessari samgönguáætlun en vegáætlun.
Þar sem ég á sæti í samgöngunefnd þá vil ég fara yfir nokkur atriði önnur en vegamál og nefna t.d. flugáætlunina þar sem tekjur eru 4,2 milljarðar kr. Ég vek athygli á því að þar koma inn 2 milljarðar kr. í tekjur vegna alþjóðaflugþjónustu. Þetta er mikilvægt að hafa í huga, virðulegi forseti, og það hvernig þeim peningum er ráðstafað eins og hér kemur fram. Við sjáum í þessari flugáætlun sýnishorn af þeirri þróun sem hefur átt sér stað, þ.e. að flugvöllum í leiðsögukerfi okkar hefur fækkað og að flogið er til færri staða.
Í sjálfu sér þarf ekki að ræða um margt í tengslum við flugáætlunina. Það er ánægjulegt að sjá ýmislegt sem þar er inni, t.d. vangaveltur um lengingu flugbrauta á Egilsstöðum og Akureyri og ýmislegt annað. En ég nefni þetta sérstaklega vegna þessara 2 milljarða kr. sem koma í tekjur vegna flugleiðsögu.
Siglingamálaáætlun, eins og hún heitir, er líka í áætluninni og hefur ekki mikið verið rædd. Það er kannski öðruvísi en áður var. Ég hugsa að áður hafi verið meiri átök um hafnaráætlanir, m.a. vegna þess að sú áætlun var lögð fram sér. En því miður, virðulegi forseti, er hlutverk hafna að minnka. Strandsiglingum hefur verið hætt frá og með 1. desember síðastliðnum fyrir utan eitt skip sem siglir á nokkra staði á ströndinni, þ.e. Jaxlinn. En það kom m.a. fram, virðulegi forseti, að tekjutap hafna, eftir að Múlafoss hætti að sigla með ströndinni, voru 130 millj. kr.
Það að flutningarnir færist allir upp á vegina er mjög alvarlegt mál. Þó að krafan um hraða flutninga sé mikil þá leyfi ég mér að efast um að skynsamlegt sé fyrir okkur að færa alla flutninga, t.d. á frosnum fiski, á þjóðvegina. Ég fullyrði, virðulegi forseti, að það mun hafa mikinn kostnað í för með sér fyrir þjóðarbúið í heild sinni að gera þetta á þennan hátt, m.a. með auknu vegsliti og ef til vill, þó vonandi ekki, alvarlegum slysum o.s.frv. Það er dapurt að þetta skuli gerast.
Ég ætla ekki að lengja umræðuna með því að fjalla um hvað flutningskostnaður og rekstrarskilyrði fyrirtækja á landsbyggðinni versnuðu mikið í framhaldi af því að strandsiglingarnar lögðust af.
Ég ætla að hoppa yfir 4. kaflann í samgönguáætluninni, vegáætlun, og fara yfir í umferðaráætlun. Ég vil þakka hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur fyrir að vekja athygli á umferðaröryggisáætluninni vegna þess að það hefur ekki verið rætt svo mikið um hana hér. Ég hef á undanförnum þingum oft rætt um umferðaröryggismál og fagna mjög þeirri ákvörðun sem tekin var að flytja umferðaröryggismál til samgönguráðuneytisins. Það var hiklaust hárrétt ákvörðun og ég þykist sjá og get sagt að þess ber vitni nú þegar í þessari fyrstu samgönguáætlun sem lögð er fram eftir að það var gert. Það má alltaf gagnrýna hvað eigi að fara miklir peningar í það, en hér eru stigin veigamikil skref, mjög góð, í þessum efnum. Það á að vera aðalverkefni okkar að skapa meira öryggi í umferðinni og fækka slysum, bæði dauðaslysum og alvarlegum slysum, þau eru sannarlega allt of mörg. Alveg sama hvort það er að útrýma svartblettum eða fylgjast betur með hraðakstri, bílbeltanotkun o.s.frv.
Ég hef áður sagt það í þessum ræðustól, virðulegi forseti, að ég held að margt megi læra af löggæslunni í Húnavatnssýslu, lögreglunni á Blönduósi, sem eru líka góðkunningjar mínir og ágætis vinir. Ég er alveg viss um að sýna megi fram á að það mikla umferðareftirlit sem þar er hefur stórfækkað slysum, að þau séu færri þar en víða annars staðar.
Ég held líka, virðulegi forseti, að eftir að löggæslan varð sýnilegri á Reykjanesbraut fyrir nokkrum árum hafi e.t.v. alvarlegum umferðarslysum á Reykjanesbraut stórfækkað, ég leyfi mér að fullyrða að svo sé og vonandi er það rétt. Ofsaakstur og hraður akstur veldur oftast slysum, fyrir utan ógætilegan akstur. Það kom mér t.d. mjög á óvart þegar ég las umsögn frá forvarnafulltrúa Sjóvár um vegáætlunina, hann var að tala um gatnamótin á Miklubraut og Kringlumýrarbraut, að mesta tjónið skapast þar af aftanákeyrslum, væntanlega vegna þess að menn eru annars hugar eða of nálægt næsta bíl, sem getur valdið mjög miklum og alvarlegum áverkum hjá fólki sem í bílunum er, að maður tali ekki um hálshnykki og annað slíkt. Það er auðvitað mjög alvarlegt mál og á ekki að eiga sér stað.
Ég fagna kaflanum um umferðaröryggisáætlun og mér finnst hæstv. samgönguráðherra og samgönguráðuneytið vera að taka vel á þeim málum, að það sé orðinn betri bragur á þessu en áður var þegar þetta var vistað í dómsmálaráðuneytinu þar sem því var kannski ekki sinnt eins mikið, en hönnun á vegum, vegagerð, eftirlit með vegum og þjónusta fer allt mjög vel saman.
Þá ætla ég að snúa mér, virðulegi forseti, að 4. kafla í áætluninni, vegáætlun, og fara lítillega yfir nokkra þætti sem ekki hefur verið farið yfir og menn kannski gera sér ekki grein fyrir. Heildartekjur í þann málaflokk eru 13,3 milljarðar og 380 millj. fara þar í afborganir af lánum vegna ýmissa þátta. Það er öll summan sem um er að ræða. Í landinu okkar er vegakerfi upp á 13 þús. km og það er mjög fjöllótt, mikið um firði og víkur og annað slíkt og við erum töluvert á eftir nágrannalöndum okkar hvað varðar gæði vega.
Ég hef áhyggjur af þeim tekjustofnum sem Vegagerðinni eru ætlaðir á komandi árum sem eru sömu tekjustofnar og hafa áður verið, þ.e. af bensíngjaldi, þungaskattur að hluta sem lækkar núna vegna þess að hann verður lagður öðruvísi á og olíugjaldið. Tekjur Vegagerðarinnar til þessara mála munu minnka með sparneytnari bílum og minni eyðslu ef þær spár ganga eftir sem hér er verið að setja fram. Ríkisframlag er rétt tæpir 2,5 milljarðar og samanlagt gerir þetta þessa tölu.
Hvernig er þessu ráðstafað, virðulegi forseti? Við tökum mest á um framkvæmdaþáttinn hér, hve mikið fer til framkvæmda. Reksturinn tekur 504 millj., eða 3,8%. Hin almenna þjónusta 2,6 milljarðar, eða rétt tæp 20%. Almenningssamgöngur, rannsóknir og annað slíkt taka 1.181 millj., eða tæp 9%. Viðhald vega, athyglisverð tala, 3,6 milljarðar, eða tæp 20%. Síðan komum við að þeim þáttum sem okkur þykir hvað vænst um og tökumst kannski mest á um, þ.e. stofnkostnað upp á 4,6 milljarða, eða tæp 35% og stofnkostnaður grunnnets upp á 1.700 millj., eða 12,8%. Þetta er öll summan sem við fjöllum um.
Bara rétt til að halda því til haga, virðulegi forseti, hefur það verið lagt fram af Félagi íslenskra bifreiðaeigenda að tekjur ríkissjóðs af allri umferð í landinu, innflutningstollum og sköttum og öllu því sem gerist og telja má að komi frá umferðinni voru fyrir einu til tveimur árum þegar ég sá síðast þær tölur 32–33 milljarðar kr. Aðeins helmingur og kannski innan við helmingur, ef það eru bara þær tölur sem við sjáum hjá Vegagerðinni, fara til vegamála, þ.e. í rekstur, þjónustu og stofnkostnað. Það er auðvitað mjög lág tala og þar stendur hnífurinn í kúnni.
Ég hygg að allir þingmenn geti verið hjartanlega sammála um að það vantar meira fé í öll kjördæmi, alls staðar á landinu, til að gera meira í samgöngumálum og sérstaklega vegamálum. Öll getum við verið sammála um það.
Það er rétt sem hefur hér verið gagnrýnt að það hefur verið niðurskurður upp á 6 milljarða fyrir árin 2004, 2005 og 2006 í þessum málum, sem er gert í nafni þess að draga úr framkvæmdum og minnka þenslu vegna stórra og mikilla framkvæmda fyrir austan. Ég er þessu ósammála vegna þess að ég tel að það skipti ekki miklu máli fyrir efnahagslífið í landinu hvort vegaframkvæmdir, sem eru arðbærar framkvæmdir, þarfar og góðar, hvort sem það er á höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni, að 2 milljarðar niðurskurður í þeim framkvæmdum skipti miklu máli hvað varðar efnahagslífið, verðbólgu, stöðu krónunnar og annað slíkt. Við sjáum nefnilega, virðulegi forseti, að þrátt fyrir hinar miklu framkvæmdir fyrir austan og á höfuðborgarsvæðinu erum við samt sem áður að fá mjög góð og lág tilboð í vegaframkvæmdir, jarðvinnsluþætti og annað slíkt, vegna þess að verktakar hafa náð mikilli tækni, eru mjög vel tækjum búnir og það er töluverð samkeppni í greininni, það er því ekki það versta í þessu. Niðurskurður í samgönguáætlun upp á 2 milljarða er sennilega — ja, ég veit ekki hvað viðskiptin á Verðbréfaþingi voru í dag, en 10 milljarðar er sennilega ekki fjarri lagi ef menn í þeim bransa hafa verið í stuði. Það er öll upphæðin.
Ég er því ósáttur við að þetta sé niðurskurður eins og fram hefur komið. Ég tel að nota eigi meiri peninga í þetta, vegna þess að þetta er mjög arðbært fyrir land og þjóð, gagnvart landsbyggðinni er þetta sennilega arðbærasta og besta byggðaframkvæmdin í samgöngumálum í dag. Fyrir 20, 30, 40 árum var ekki talað um vegaframkvæmdir eða slíkt, þá var talað um að stjórnvöld tækju þátt í að útvega skuttogara, jafnvel í hvern fjörð, jafnvel á hvert heimili, var sagt á tímabili.
Tímarnir hafa breyst. Samgöngumál, bætur í samgöngumálum, stytting vegalengda, öruggari vegir og annað slíkt er nútímabyggðastefna sem á að hlúa að og allir á Alþingi eiga að geta sameinast um.
Virðulegi forseti. Ég hef unnið töluvert í gögnum sem hafa komið til samgöngunefndar o.fl. Mér þótti mjög merkilegt þegar ég tók hina fjóru vegaflokka sem fjallað er um í þessari ágætu samgönguáætlun og hæstv. samgönguráðherra birti m.a. í blaðagrein ekki alls fyrir löngu, þ.e. lengd vega eftir kjördæmum í þeim fjóru flokkum sem við skiptum vegunum til, þ.e. stofnvegi, tengivegi, safnvegi og landsvegi.
Ég sagði áðan að vegakerfið er um 13 þús. km. Ég ætla ekki að lengja umræðuna með því að taka dæmi og lesa upp sem ég hefði gert ef við hefðum haft betri tíma og verið að ræða þetta undir eðlilegum kringumstæðum, ég er reyndar ekki í þeirri tímapressu að við séum að ljúka þingi, en ef ég tæki sem dæmi Reykjavíkurkjördæmi gagnvart stofnvegum eru 72 km þar, eða 2% af heildarvegakerfi stofnvega. Í tengivegum eru 11 km í Reykjavíkurkjördæmi. Útreikningar á mínu excel-skjali hafa ekki sýnt prósentutöluna í því en það eru sennilega 0,2% eða 0,3%. Í safnvegum eru þetta 24 km, eða 1%. Á landsvegum 8 km og mælast varla í prósentutölu. Það er líka himinn og haf, virðulegi forseti, í því þegar maður skoðar heildarvegalengd milli kjördæma og svo aftur þá vegalengd sem búið er að leggja varanlegu slitlagi. Það er ansi athyglisvert og þarf kannski ekki að koma á óvart, að í Norðvesturkjördæmi eru rúmir 5 þús. km af hinum 13 þús. km, eða tæp 40% vegakerfisins. 30% af þeim eru komnir með varanlegt slitlag. Í mínu kjördæmi, Norðausturkjördæmi, eru þetta 4 þús. km og í Suðurkjördæmi 3.500 km. Þarna eru, virðulegi forseti, 97% af öllu vegakerfinu.
Þetta vildi ég leggja inn í umræðuna vegna þeirra hörðu skoðanaskipta sem orðið hafa milli höfuðborgarþingmanna og landsbyggðarþingmanna, mjög óheppileg umræða sem ég veit að landsbyggðarfólk tekur illa og höfuðborgarbúar vafalaust líka. Mér finnst ekki góður bragur á þegar þetta lendir í þvílíkri rimmu og deilum eins og hér hafa verið að maður fær símhringingar frá fólki á landsbyggðinni sem spyr mann að því hvort það sé orðið hálfgerðir þurfalingar eða baggi á þjóðinni, hvort það eigi að fara að pakka saman og hypja sig í burtu, því fólk hefur það á tilfinningunni að það sé þar jafnvel í óþökk ákveðinna manna. Þetta er miður, virðulegi forseti, og á ekki að eiga sér stað. Það getur vel verið að segja megi að sá sem hér stendur hafi tekið þátt í þeirri umræðu, en ég held að það hafi frekar verið gert í vörn en í sókn.
Ég nefndi þetta með vegina vegna þess að mér finnst hafa komið fram hjá nokkrum þingmönnum að þeir telji að það eigi ekki að nota þá aðferð sem Vegagerðin hefur haft og ætlar að hafa, en hún er að þróa nýja aðferð fyrir 2007 og 2008, þ.e. seinni tvö ár áætlunarinnar, þar sem tekið er tillit til lengdar vega í kjördæmi og umferðar þar. Ég vil taka það skýrt fram, vegna þess að sá misskilningur hefur komið fram hjá nokkrum þingmönnum að ekki sé tekið tillit til umferðarmagns. Það er gert. Ég hef áður sagt að hjá Vegagerðinni er mjög faglega unnið að öllum undirbúningi og allri framkvæmd. Á lokablaðsíðum áætlunarinnar sér maður hvernig þetta er gert og hvernig þetta verður gert. Ég verð að segja alveg eins og er að ég held að þetta sé sanngjörn skipting og réttlát, en málið er að það er of lítið af peningum til að deila niður eftir þessum formúlum. Þess vegna lendum við í þeim átökum sem staðið hafa svolítið í dag og undanfarna daga.
Ég er ekki sammála því, virðulegi forseti, að hægt sé að nota þá skiptitölu að taka heildaríbúafjölda og fjölda bíla eins og meira að segja hefur verið getið um á höfuðborgarsvæðinu og það eigi að gefa einhverja reiknitölu til framkvæmda á höfuðborgarsvæðinu. Það er bara ekki hægt. Ég hef sagt: Á að taka fangelsismál, rekstur fangelsa og telja hvaðan fangarnir koma og deila því einhvern veginn þannig niður? Nei. Þess vegna harma ég að það séu deilur um þetta og ég trúi ekki öðru en að við á hv. Alþingi getum náð niðurstöðu um að finna sanngjarna deilitölu hvað þetta varðar. Það liggur í augum uppi að meira fé er veitt t.d. í safnvegi og ætti að vera mest í kjördæmi eins og Norðvesturkjördæmi þar sem 43% af öllum safnvegum eru og aðeins 1% af þeim eru lagðir varanlegu slitlagi. Það segir sig sjálft að þar þarf að taka til hendinni.
Ég ætla að fara aðeins í þá kafla sem fjalla um skiptingu og annað slíkt. Ég hef átt ánægjulega fundi sem einn af þingmönnum Norðausturkjördæmis með fulltrúum Vegagerðarinnar þar sem farið var í gegnum þær tillögur sem lágu fyrir í áætluninni og þær skoðaðar gagnvart þeim verkum sem þar liggja fyrir. Við færðum örlítið til milli ára vegna þess að sum verk voru tilbúin en önnur ekki o.s.frv. Um það varð sátt að lokum, það var tekist á og um það varð sátt. Þess vegna held ég að það eigi að vera hægt að tala sig til sátta í þessum málum eins og mér heyrist að flestallir þingmannahóparnir hafi gert.
En auðvitað erum við þingmenn Norðausturkjördæmis ekki ánægðir, við vildum hafa meira fé t.d. í mjög brýnar framkvæmdir í Skriðdal, sem er á þjóðvegi eitt. Vopnafjörður, sá fallegi bær er með vegasamband sem ég mundi halda að tilheyrði 6. áratugnum, eitthvað svoleiðis, hryllilegur vegur. Menn eru að tala um að fara í Hólaheiði á norðausturhorninu til að tengja betur saman byggðirnar Þórshöfn/Raufarhöfn og koma betri vegasamgöngum þangað. Menn hafa verið að tala um hinn mikla og fjölfarna veg, Kísilveg, svo ég taki hann sem dæmi, sem liggur frá Mývatni niður á Húsavík, mjög fjölfarinn vegur af ferðamönnum þar sem þeir keyra kannski á malbiki og svo allt í einu koma þeir yfir hæð og lenda þá á malarvegi. Sumir útlendingar vita ekki hvað það er að keyra á malarvegi. Í hinni fallegu sveit, Eyjafjarðarsveit, er mjög mikið verk fram undan og vantar miklu, miklu meiri peninga. Þannig má endalaust halda áfram að fjalla um atriði sem menn vildu sjá inni en meira fé þarf til.
Hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson fjallaði um þann mun sem er á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis. Á höfuðborgarsvæðinu vex og vex ýmislegt, sem betur fer, og nóg að gera, íbúðaverð hækkar, fólk hefur fínar tekjur o.s.frv. Á landsbyggðinni er því miður samdráttur, m.a. út af gengisskráningu, eins og hv. þingmaður nefndi, þar sem atvinnufyrirtæki sem eingöngu eru á landsbyggðinni og halda uppi atvinnu þar, sjávarútvegsfyrirtæki, fá minna og minna fyrir framleiðsluvörur sínar meðan ýmis atvinnustarfsemi á höfuðborgarsvæðinu gengur miklu betur en áður vegna gengisins sem gerir innkaupaverð á vörum lægra, sem oft á tíðum er selt til kaupenda án þess að þeir finni því stað að varan hafi lækkað.
Svona getum við lengi haldið áfram. Ég sem fulltrúi í samgöngunefnd hef reynt að haga málflutningi mínum þannig og vinnubrögðum að ég horfi ekki eingöngu á kjördæmi mitt. Auðvitað eiga þingmenn viðkomandi kjördæma að vera sérfræðingar á sínu sviði og þekkja sitt kjördæmi út og inn, eins og fram hefur komið. Ég keyri oft vestur á firði en segi jafnframt: Árið 2005, 2006, jafnvel 2007 er loksins verið að gera Djúpið að almennilegum vegi alla leið, ef svo má að orði komast, með malbiki og öðru. Það eru stórir áfangar á áætluninni frá Ísafirði í Djúpinu í Mjóafjörð, Barðaströndinni. Arnkötludalur, mjög athyglisverð hugmynd um að stytta vegalengdir þar um 40 km, og það sem talað er um hér, Svínadalur og Flókalundur, Þverárfjallið. Ég var þingmaður gamla Norðvesturkjördæmisins í fjögur ár og studdi þá framkvæmd og taldi hana mjög til bóta fyrir Skagfirðinga, Skagstrendinga og Blönduósinga og aðra sem vilja keyra þá leið. Sumir nota þá leið, aðrir ekki þegar þeir eru að fara lengra.
Á höfuðborgarsvæðinu kalla margar framkvæmdir á okkur. Þær eru þó annars eðlis en á mörgum stöðum á landsbyggðinni. Á höfuðborgarsvæðinu snúast þær um að skapa aðstæður til að umferðartafir verði minni á nokkrum álagspunktum dagsins og ársins, að það verði greiðari leið. Á landsbyggðinni snýst þetta kannski um að fólk komist yfir höfuð milli staða vegna þess að oft á tíðum eru vegir orðnir ófærir bara í fyrstu snjóum, t.d. á norðausturhorninu.
Ég hef einhvern tíma heyrt hæstv. samgönguráðherra þakka þingmönnum fyrir hinn mikla áhuga á samgöngumálum og vegamálum og þakka fyrir þann stuðning sem þeir hafa sýnt þeim málum. Það er auðvitað hárrétt hjá samgönguráðherra, auðvitað hefur hæstv. samgönguráðherra metnað fyrir því að gera sem mest í samgöngumálum og við þingmenn eigum að styðja við bakið á hæstv. samgönguráðherra í þeim efnum og ég held að það sé yfirleitt gert.
Virðulegi forseti. Í umræðunni hefur margt verið sagt í hita leiksins, margt verið gagnrýnt og stundum hafa menn kannski gengið fulllangt. Ég ætla ekki að lengja tímann með því að lesa upp úr Framkvæmdafréttum 9. tbl. ársins 2005. Þar er sýnt og auglýst útboð vegna lagfæringa á Kringlumýrarbraut/Miklubraut, þeim slæmu vegamótum. Þar er verið að reyna að bæta úr og minnka umferðartafir og minnka hættu á árekstrum og slysum. Þetta er vel. Þetta eru ekki mislæg gatnamót vegna þess að samstaða hefur ekki verið um það. Vonandi bætir þetta. Ég hef keyrt töluvert um Reykjavík síðan ég kom á þing 1999 og hef tvisvar gleymt mér og slysast inn á þessi gatnamót. Ég hef yfirleitt getað keyrt fram hjá þeim vegna þess að ég er hræddur við að fara þau, skil fólk vel að það vilji breyta þessu. En ég vil líka halda því til haga að verkið er ekki komið á framkvæmdastig, því miður er ekki hægt að veita í það fé vegna þess að menn eru ekki á eitt sáttir um hvernig á að gera það.
Ég fletti líka yfir fréttabréf Orkuveitu Reykjavíkur vegna þess að við vorum að tala um niðurskurð upp á 2 milljarða í vegamálum á árinu. Hér stendur að framkvæmdir á Orkuveitu Reykjavíkur eru fyrir 11,4 milljarða á þessu ári. Það eru miklar tölur. Ég vildi að ég gæti nefnt svipaðar tölur gagnvart mínu kjördæmi í ýmsum öðrum málum en stóriðjumálum.
Virðulegi forseti. Ég ætla að stytta mál mitt og reyna að draga það saman. Ég gagnrýndi mjög hv. þm. Gunnar Birgisson og hef gert það mjög hvasst viljandi vegna þess að mér finnst hv. þingmaður tala mjög niður til landsbyggðarfólks með tillöguflutningi sínum og rökstuðningi sínum. Að ætla sér að lagfæra hluti í vegáætlun, auka fé til framkvæmda á höfuðborgarsvæðinu, sem ég er sammála um að vanti og þurfi, alveg eins og ég vænti þess að hv. þingmaður sé sammála því að það vanti fé í ýmis landsbyggðarkjördæmi, en það verður ekki gert með því að taka fé í þessu tilviki af landsbyggðinni úr verkum sem þar er verið að vinna og hafa verið í undirbúningi, jafnvel í 15 ár, eins og það sem aðallega er ráðist á, þ.e. gerð Héðinsfjarðarganga. Ég verð að segja alveg eins og er, virðulegi forseti, að mér finnst miður að hv. þingmaður skuli ganga þessa göngu og gera þetta á þennan hátt með tillöguflutningi sínum og þeim lýsingum sem hann hefur sett fram máli sínu til stuðnings.
Það er þetta sem ég á við, virðulegi forseti, þegar ég segi að landsbyggðarfólk telur það mjög miður og finnst eins og hv. þingmaður og þeir sem taka undir málflutning hans séu að tala niður til landsbyggðarfólks og líti á landsbyggðarfólk sem einhverja annars flokks borgara, það er miður.
Hv. þm. Gunnar Birgisson hefur staðið sig vel í sínu starfi sem bæjarfulltrúi í Kópavogi og tekist að byggja Kópavog vel upp. Ég er ekki að tala um að það þurfi að taka ýmislegt úr Kópavogi og færa eitthvert annað. Kópavogur má byggjast upp á þann glæsilega hátt sem hann hefur gert í þeirri uppsveiflu sem hefur verið síðustu ár á höfuðborgarsvæðinu. En sú tillaga sem hv. þingmaður flutti hér, sem kemur svo í ljós að er meingölluð eins og ég gat um í stuttu andsvari, að þegar 1.200 millj. kr. til jarðgangaáætlunar, eins og stendur hér, er skorin niður um 1.000 millj. duga hinar 1.200 millj. rétt til að borga verktakanum fyrir það sem hann er að vinna á árinu í Fáskrúðsfjarðargöngum. Að ætla að skera það niður sýnir náttúrlega að áætlunin er ekki mjög vel ígrunduð. Þeir vankantar sem hér eru á og ég gagnrýndi eru t.d. sérstök árás hans á framkvæmdir í Norðvesturkjördæmi.
Ég veit ekki hvort ég á að segja það, virðulegi forseti, en ég gæti vel ímyndað mér að hv. þm. Gunnar Birgisson hefði viljað vera samgönguráðherra. Það getur vel verið að hv. þingmaður hafi líka viljað vera formaður samgöngunefndar en ekki fengið. En mér er það óskiljanlegt hvernig ráðist er á þessar framkvæmdir og ég gagnrýni fyrst og fremst það að ætla að skera niður jafnsjálfsagðar framkvæmdir og hér eru settar fram til að auka á höfuðborgarsvæðinu, ég er ósammála aðferðafræðinni. Þess vegna gagnrýni ég áætlunina og trúi reyndar ekki öðru en að hv. þingmaður dragi breytingartillöguna til baka á miðvikudaginn og láti það nægja að hafa hafið þá hvössu umræðu og hvössu deilur sem um hana hafa orðið.
Virðulegi forseti. Ég ætlaði mér ekki að vera nema kannski 30 mínútur með smáviðbót þannig að ég ætla að fara að ljúka máli mínu. Ég ætla að ítreka rétt að lokum það sem ég hef áður sagt, að vonandi vilja þingmenn fá meira til samgöngumála á næstu árum. Það er eðlilegt miðað við það sem ég hef verið að reyna að halda fram í ræðu minni. Svo geta menn verið á öndverðri skoðun um hvernig leysa á samgöngumál viðkomandi svæða.
Ég ætla að segja rétt í lokin, vegna þess að Héðinsfjarðargöng hefur oft borið á góma, að ég tel það mjög farsæla lausn og hef áður sagt það, hælt bæði fyrrverandi forsætisráðherra, núverandi og öðrum fyrir það hvernig tekið hefur verið á þeim málum — svo og öðrum stjórnmálamönnum, virðulegur forseti. Ég held að ég geti fullyrt að formenn allra stjórnmálaflokka á Íslandi, Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, Samfylkingar, Vinstri grænna og Frjálslyndra hafi lýst stuðningi við þá framkvæmd. Sú framkvæmd, eins og áður hefur komið fram, hefur verið á umræðustigi í allt að 15 ár. Nú sér loksins fyrir endann á því að verkið verði boðið út.
Af því að ég þakkaði hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur áðan fyrir að taka til máls um umferðaröryggisáætlun verð ég að segja að ég get ekki sagt það sama um umræðu hennar um Héðinsfjarðargöng, Fljótaleið eða annað, vegna þess að það sem hún sagði var einfaldlega ekki rétt. Þessir tveir kostir voru bornir mjög vel saman af öllum aðilum, Vegagerð, skipulagsyfirvöldum, verkfræðistofum og öðrum. Unnið var eftir tillögum manna um hvaða leið ætti að fara í Fljótum. Halda menn virkilega að sá sem hér stendur og var í forsvari fyrir bæjarstjórn Siglufjarðar í tólf ár hafi ekki haft áhuga á þessari leið? Hún var skoðuð mjög vel í byrjun. Menn komust einfaldlega að þeirri niðurstöðu að það væru allt of margir vankantar á henni, eins og t.d. að Siglufjörður tengist ekki eins vel við byggðirnar Ólafsfjörð og annað slíkt til að skapa eitt sveitarfélag í öllum Eyjafirði, sem ég hygg að verði komið eftir sex til átta ár.
Ókosturinn við Fljótaleið var að fara í Fljótunum upp í allt að 200 m hæð með jarðgangamunna í þessari mestu, ja, ég vil segja snjókistu landsins þegar sá gállinn er á, þegar mikið vetrarveður er. Það þekkir sá sem hér stendur hvernig er að keyra í Fljótunum þegar vont veður er.
Ég ætla ekki, virðulega forseti, að lengja umræðuna með því að segja frá hvernig unnið var að þessu áður fyrr. Ég held hins vegar að unnið hafi verið að þessu á fullkomlega eðlilegan hátt, farið eftir lögum og reglugerðum og öðru og það hafi verið staðið eðlilega að öllum þáttum sem leiddi til þeirrar niðurstöðu með umhverfismat og ákvörðunartöku hæstv. ríkisstjórnar að fara í verkið og að það sé að komast á framkvæmdastig.
Ég held að það fari vel á því að enda ræðu mína á því að þakka enn einu sinni hæstv. ríkisstjórn og öllum þeim fjölmörgu alþingismönnum sem hafa tekið þátt í að samþykkja framkvæmdina, bæði við samþykkt jarðgangaáætlunar árið 2000 og síðustu samgönguáætlunar árið 2003.