131. löggjafarþing — 129. fundur,  10. maí 2005.

Börn og unglingar með átröskun.

661. mál
[10:41]

heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það með hv. fyrirspyrjanda að þetta er mjög alvarlegur og flókinn sjúkdómur sem menn þurfa að berjast við. Það er alveg full ástæða til að reyna að styðja við bakið á þeim sem hafa gefið sig í það að hjálpa til í þessu efni.

Ég vil taka það fram varðandi bætta aðstöðu á geðdeild Landspítalans að hún er fyrir hendi núna og við höfum gert ráðstafanir af svigrúmi okkar á þessu ári til að gera yfirmönnum kleift að ráða fleiri sérfræðinga þar inn. Ég reikna þá með því í fjárlagabeiðnum okkar að nota það svigrúm sem við höfum framvegis til að efla þá þjónustu. Við bindum miklar vonir við það. Ég tek líka alvarlega þær ábendingar sem eru varðandi BUGL í þessu efni vegna þess að þeir sjá um þjónustu við börn og unglinga sem lenda í þessum mikla vanda.

Ég endurtek þakkir fyrir að taka þetta mál upp því að hér er um mjög erfitt og alvarlegt vandamál að ræða.