131. löggjafarþing — 129. fundur,  10. maí 2005.

Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála.

755. mál
[10:46]

Fyrirspyrjandi (Gunnar Birgisson) (S):

Frú forseti. Ég er með fyrirspurn til hæstv. umhverfisráðherra varðandi störf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, sem er afar mikilvæg nefnd og mörg mál sem fara fyrir hana. Það hefur verið vandamál með afgreiðslutíma í nefndinni og verið kvartað yfir því að þar skorti starfskraft og annað. Það væri því gott að fá að heyra frá hæstv. ráðherra um það. En spurningarnar eru eftirfarandi:

1. Hve mörg mál eru nú í vinnslu hjá úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála og hve lengi hafa þau beðið afgreiðslu?

2. Hver er meðalafgreiðslutími kærumála sem berast nefndinni?

3. Hversu mörg mál tengd Kópavogsbæ eru til úrvinnslu hjá nefndinni? — Það mætti kannski fá aldursgreiningu á þeim. En í lögum stendur að afgreiðslutíminn eigi ekki að vera skemmri en þrír mánuðir og svo núna tveir mánuðir.

Það væri gaman að fá að vita hvernig þessi mál standa. Þetta er afar mikilvægt fyrir skipulagsyfirvöld viðkomandi bæjarfélaga, sem og byggingaraðila og þá sem kæra og annað slíkt. Ef svör dragast getur það valdið gífurlegu fjárhagslegu tjóni fyrir alla aðila sem koma þar nærri. En ég bíð spenntur eftir svörum hæstv. umhverfisráðherra.