131. löggjafarþing — 129. fundur,  10. maí 2005.

Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála.

755. mál
[10:53]

Sigurjón Þórðarson (Fl):

Frú forseti. Við erum að ræða úrskurðarnefnd um skipulagsmál. Ég tel að skoða eigi þessi mál í víðara ljósi, þ.e. skoða allar úrskurðarnefndir í stjórnsýslunni sem eru orðnar fjölmargar. Ef ég man rétt eru þær í kringum 44, samkvæmt svari sem barst í fyrra þegar var spurt út í úrskurðarnefndir í stjórnsýslunni. Kostnaðurinn við þær var á fjórða hundrað milljóna króna. Ég tel tímabært að menn velti fyrir sér hvort ekki ætti að stofan einhvers konar stjórnsýsludómstól til að koma öllum slíkum úrskurðarmálum í fastari farveg. Hér kemur fram að nefndin hafi ekki fengið gögn og það hafi orðið til þess að úrskurðir kæmu seint.

Ég vil nefna annað mál í tengslum við málefni umhverfisráðuneytisins. Það eru þvingunarúrræðin. Það er óþolandi að umhverfisráðuneytið hafi svo máttlaus þvingunarúrræði, dagsektirnar sem ekkert bíta. Það kom fram í svari frá hæstv. umhverfisráðherra að hún var býsna ánægð með þvingunarúrræðin, þ.e. dagsektir sem aldrei innheimtust. Ég botna ekkert í því.