Fjárhagsstaða meðlagsgreiðenda.
félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (F):
Hæstv. forseti. Samkvæmt upplýsingum frá Innheimtustofnun sveitarfélaga telst meðlagsgreiðandi ekki vera í vanskilum nema hann skuldi minnst 100 þús kr. og miðast því upplýsingar í þessu svari við það. Þær taka mið af stöðu um síðustu áramót, 31. desember sl.
Fjöldi meðlagsgreiðenda var 12.229 manns sem greiða með 20.206 börnum. Þar af eru börn yngri en 18 ára 16.053, þ.e. 79,4%, en börn sem orðin eru 18 ára eða eldri 4.153, þ.e. 20,6%. Samtals stofnast nýjar meðlagskröfur að upphæð u.þ.b. 2,7 milljarðar á ári. Þar af innheimtast ríflega 70% á því sama ári. Mismunurinn, um 600–700 millj., þ.e. 25–30%, greiðist af Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Fjöldi meðlagsgreiðenda í vanskilum um síðustu áramót var 6.534, þ.e. 53,4%, af heildarfjölda meðlagsgreiðenda. Þeir skiptast þannig eftir aldri barna yngri en 18 ára annars vegar og eldri en 18 ára hins vegar, fyrst vanskil vegna barna yngri en 18 ára: Meðlagsgreiðendur í vanskilum eru 4.104 og skulda vegna 8.990 barna, þ.e. 56% allra barna yngri en 18 ára sem greitt er með. Vanskil vegna barna sem orðin eru 18 ára eða eldri: Meðlagsgreiðendur í vanskilum eru 2.430 og skulda vegna 4.022 barna, þ.e. 96,8% allra barna eldri en 18 ára og eldri sem greiða átti með.
Innheimtustofnun sveitarfélaga hefur metið að ríflega þriðjungur, þ.e. um 4.100 af öllum meðlagsgreiðendum sem eru í vanskilum, sé í verulegum erfiðleikum, svo sem vegna gjaldþrots, árangurslausra fjárnáma o.fl. Samtals nema skuldir þessara meðlagsgreiðenda um 10,3 milljörðum kr. en framreiknaðar heildarskuldir allra meðlagsgreiðenda við stofnunina eru nú rúmlega 13 milljarðar með dráttarvöxtum.
Árið 1996 var gerð breyting á innheimtumálum Innheimtustofnunar sveitarfélaga með breytingu á lögum sbr. lög nr. 71/1996 og reglugerð. Breytingin var þáttur í samræmdum aðgerðum ríkisstjórnarinnar til hjálpar einstaklingum sem eiga í alvarlegum greiðsluerfiðleikum við að ná tökum á fjármálum sínum. Í lögunum er tekið á þeim vanda sem stafar af uppsöfnuðum skuldum vegna félagslegra erfiðleika skuldara með því að stjórn Innheimtustofnunar var heimilað að gera tímabundna samninga við skuldara. Í því felst að skuldarinn greiðir lægri upphæð en til fellur mánaðarlega sökum félagslegra erfiðleika. Tilgangur þess var að koma á hreyfingu hjá skuldurum og gera fleiri skuldara að skilamönnum, eins og segir í frumvarpi til laganna. Ef staðið er við samninginn í a.m.k. þrjú ár er heimilt að afskrifa höfuðstól að hluta eða öllu leyti. Þetta fyrirkomulag, hæstv. forseti, hefur skilað tilætluðum árangri og tekið á vanda margra einstaklinga sem hafa nú leyst úr málum sínum með þessum hætti.
Í lok árs 2004 voru nær 2.800 meðlagsgreiðendur með samning við stofnunina, þ.e. um 40% þeirra sem nú eru á vanskilaskrá eins og fyrr var getið, og hefur þeim fjölgað ár frá ári. Samkvæmt upplýsingum frá Innheimtustofnun sveitarfélaga hefur innheimtan batnað undanfarin ár og er þar vísað fyrst og fremst til framangreindrar reglugerðar frá árinu 1996 auk bættrar tækni og búnaðar sem aukið hafa þekkingu og afköst. Stofnunin býr nú við sérsmíðað innheimtukerfi og innheimtan er því í betra horfi en áður. Sem stendur er ekki á döfinni að ganga lengra í átt til lagabreytinga til að leysa vanda skuldara sem búa við erfiðar aðstæður en gert var á árinu 1996. Meginatriðið er að halda áfram á þeirri braut sem þá var lögfest og útfærð með reglugerð og gefist hefur vel eins og komið hefur fram. Þetta er þó mál sem okkur ber að fylgjast grannt með, og það mun ég og mitt fólk í félagsmálaráðuneytinu gera.