Fjárhagsstaða meðlagsgreiðenda.
Katrín Júlíusdóttir (Sf):
Virðulegi forseti. Þegar við lögðum þessa fyrirspurn fram bjóst ég aldrei við að fram kæmi tala upp á að 53,4% allra meðlagsgreiðenda væru í vanskilum. Þetta er svo rosalegt að maður missir nánast málið.
Ég varð þess vegna fyrir gríðarlegum vonbrigðum þegar hæstv. félagsmálaráðherra sagði áðan að ekki sé ætlunin að ganga lengra en gert var 1996 þegar staðan er þannig að 53,4% allra meðlagsgreiðenda eru í vanskilum. Það segir okkur að vandinn er það stór að það verður að grípa til aðgerða, það verður að ganga lengra. Ég tel að menn ættu að setjast yfir þetta og líta á þetta sem alvöruvanda hvað þessa aðila varðar og fara að íhuga atriði eins og t.d. hugsanlega að þeir sem greiða meðlag fái skattaívilnanir eða annað. Það á ekki að vera norm í samfélagi okkar að meðlagsgreiðendur séu almennt í vanskilum með meðlög sín. Þá er vandi á ferð.