131. löggjafarþing — 129. fundur,  10. maí 2005.

Fjárhagsstaða meðlagsgreiðenda.

759. mál
[11:30]

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Virðulegi forseti. Hér hafa verið nefndar ansi afdráttarlausar og sláandi tölur sem hljóta að kalla á að hæstv. ráðherra setji í gang úttekt á ástæðum fyrir því að svo stór hópur meðlagsgreiðenda sé í vanskilum.

Eins og fram kom áðan þá blasir við og er alkunna að einstæðir feður eru drjúgur hluti þess hóps í samfélaginu sem á oft í hvað mestum erfiðleikum með að ná tökum á lífi sínu, þar sem sjálfsvígstíðnin er hæst, drykkjuskapur mestur og félagslegar aðstæður hvað ömurlegastar og verstar. Það los sem virðist koma á líf manna við að ganga í gegnum hjónaskilnað og félagslegt rót sem því fylgir virðist oft koma þeim í mjög erfiðar aðstæður. Það verður að gera gangskör í að rannsaka ástæðurnar fyrir því að svo er komið sem hér kemur fram og hvað veldur því.