Gegnumlýsingartæki fyrir tollgæsluna.
fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (S):
Virðulegi forseti. Ég hygg að tollvörðum í heild hafi ekki fjölgað sem þessu nemur heldur má vera að verkaskiptingu milli þeirra hafi verið örlítið breytt. Það er auðvitað reynt að nýta þann mannafla sem fyrir hendi er hverju sinni með þeim hætti að hann nýtist sem best en það má vera að einhver blæbrigðamunur sé á þessum svörum með tilliti til þess hvernig spurningarnar eru orðaðar. Það kann því að vera eitthvert misræmi sem hefur skapast af þeim sökum.
En aðalatriðið er auðvitað það að hv. þingmaður, ég og væntanlega við öll í þessum sal tökum höndum saman um að stemma stigu gegn þeirri vá sem hann hefur lýst og felst í þeim fikniefnainnflutningi sem grefur undan gildum í samfélagi okkar og stefnir ungviði landsins í voða.