131. löggjafarþing — 130. fundur,  10. maí 2005.

Almennar stjórnmálaumræður.

[20:58]

Þuríður Backman (Vg):

Hæstv. forseti. Góðir landsmenn.

Sjónvarpsútsendingar og fréttaflutningur beina sjónum okkar að ákveðnum atburðum og svæðum. Fréttamatið er háð spennu og auglýsingagildi og oft skortir úthald og viðveru fréttamanna til að fylgja atburðum eftir. Dæmi um það er fréttaflutningur af ástandinu í Palestínu. Fréttir af daglegu lífi venjulegs fólks á herteknum svæðum Palestínu og Sýrlands ná ekki eyrum fjölmiðlanna. Fréttir af fólki sem reynir að komast af við aðstæður sem helst minna á þrjár fordæmdar aðgerðir, þ.e. gettóin á tímum nasista í Þýskalandi, aðskilnaðarstefnu Suður-Afríku og Berlínarmúrinn, aðstæður sem hindra eðlilegar samgöngur og samskipti fólks, hindra tækifæri til atvinnu og atvinnusköpunar, nær útiloka nýbyggingar og möguleika ungs fólks til að búa út af fyrir sig, aðstæður sem stuðla að því að brjóta niður andlegt og líkamlegt þrek heillar þjóðar.

Svæðið fyrir botni Miðjarðarhafsins er púðurtunna sem hlýtur að springa ef alþjóðasamfélagið fer ekki að grípa ákveðnar inn í gang mála m.a. með friðargæsluliðum, banni við landnemabyggðum á herteknum svæðum Ísraela og niðurrifi aðskilnaðarmúrsins, eins og þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hafa ítrekað lagt til á hv. Alþingi.

Um páskana fórum við nokkrir þingmenn í kynnisferð á eigin vegum til Palestínu og Ísrael. Í framhaldi af þeirri för og eftir að hafa séð með eigin augum hvernig skipulagðar hindranir á herteknum svæðum valda palestínsku þjóðinni erfiðleikum við að sækja heilbrigðisþjónustu þá lögðum við fram þingsályktunartillögu um stuðning íslenska ríkisins í formi færanlegrar sjúkrastöðvar. Tillagan hefur ekki verið tekin inn á dagskrá þingsins en vonandi fær hún góðan stuðning við gerð næstu fjárlaga.

Góðir hlustendur. Ríkisstjórnin hélt í vor upp á tíu ára stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Á þessum eina áratug hafa ríkisstjórnarflokkarnir unnið markvisst að því að gjörbreyta allri þjóðfélagsgerðinni. Markaðshyggja og stóriðjustefna hefur ráðið för og er nú svo komið að verið er að rugga samfélagslegum undirstöðum velferðarkerfisins með sama hætti og öðrum opinberum rekstri. Smátt og smátt er skútunni ruggað út í einkarekstur og markaðsvæðingu. Ríkisstjórnin hreykir sér af góðæri og miklum hagvexti. Það rétta er að margir hafa efnast ótrúlega á þessum áratug en þeir eru fleiri sem þurfa að berjast við að ná endum saman.

Kjör atvinnulausra, aldraðra og öryrkja eru dökkur blettur á íslensku velferðarkerfi sem ríkisstjórnin skirrist við að taka á. Það verður að stokka verulega upp í almannatryggingakerfinu með tilliti til samtengingar við félagsþjónustu og atvinnuþátttöku svo komast megi hjá því að fólk festist í fátæktargildru til langs tíma. Starfsendurhæfingu þarf að stórefla hjá öryrkjum og atvinnulausum. Þetta er úrræði sem er vannýtt eins og margoft hefur verið bent á.

Góðir hlustendur. Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum birtist í hverju málinu á fætur öðru. Landbúnaðarráðherra telur framtíð íslenskra bænda liggja m.a. í stórfelldri ræktun á erfðabreyttu byggi. Engir fyrirvarar eru settir af hans hálfu, eingöngu fullur stuðningur við nýja tækni og utanhússræktun erfðabreytts byggs samhliða hefðbundnum landbúnaði. Þarna verður að fara að með gát. Offors og óvarkárni í minkaræktinni á sínum tíma mætti verða okkur umhugsunarefni og víti til varnaðar.

Stóriðjustefnan er ríkisstjórninni enn sem trúarbrögð. Þau trúarbrögð ógna Þjórsárverum og Langasjó, jökulsánum í Skagafirði og jafnvel Skjálfandafljóti með gersemunum Aldeyjarfossi og Goðafossi. Hvar ætla þessir menn að staldra við?

Komið hefur í ljós að mesta mannvirki Íslandssögunnar, Kárahnjúkavirkjun, er reist á virku jarðhita- og sprungusvæði. Svo mikill var ákafinn við að koma framkvæmdunum af stað að ekki gafst nægilegur tími til að rannsaka ábendingar um óstöðuga jarðskorpu og því enn hæpnari forsendu fyrir uppistöðulóni á þessu svæði. Eftir miklar sprungufyllingar og endurhönnun Kárahnjúkastíflu er verkið nú aftur unnið samkvæmt áætlun.

Þegar gljúfrabúanum var ljóst að jarðhiti, sprungur og jarðsig kæmu ekki í veg fyrir byggingu Kárahnjúkastíflu þá uppfyllti hann fyrirheit Sigríðar í Brattholti, kastaði sér fyrir björg og hvarf í Jöklu.

Hæstv. forseti. Góðir hlustendur. Fyrir hönd þeirra fjölmörgu sem berjast við að ná endum saman frá degi til dags vona ég að ríkisstjórninni verði ekki langra lífdaga auðið og fái hið fyrsta að svara í almennum kosningum fyrir stuðning við ólögmætt innrásarstríð, fyrir hernaðinn gegn landinu og fyrir aðför að lífskjörum aldraðra, öryrkja og atvinnulausra.

Ég þakka sem hlýddu.