131. löggjafarþing — 130. fundur,  10. maí 2005.

Almennar stjórnmálaumræður.

[21:28]

Jón Bjarnason (Vg):

Góðir Íslendingar. „Náttúra Íslands, sterk byggð, menning þjóðarinnar og fagmennska verði ráðandi þættir í þróun íslenskra ferðamála.“ Þannig hljóðar 1. mgr. þingsályktunar sem Alþingi hefur nýlega samþykkt.

Þetta er eins og tekið beint úr stefnuskrá Vinstri grænna og er það vel. Í henni kveður við nýjan tón, sem reyndar gengur fullkomlega í berhögg við stefnu iðnaðarráðherrans, álráðherra Framsóknarflokksins og aðdáenda hennar. Þar á bæ vilja menn umbylta náttúrunni, stífla allar ár, byggja virkjanir og bjóða álver á báða bóga, en stóriðjustefnan og ferðaþjónustan fara ekki saman.

Í forustugrein Morgunblaðsins 8. apríl sl. er fjallað um skoðanakönnun sem iðnaðarráðuneytið lét gera og þá niðurstöðu að Norðlendingar séu alls ekki reiðubúnir að fórna náttúruperlum sínum og samfélagi á altari erlendrar orkufrekrar stóriðju og Skagfirðingar eru þar sýnu andvígastir. Í leiðaranum segir m.a.:

„Þessar niðurstöður hljóta að vekja helstu formælendur stóriðjuframkvæmda til umhugsunar. Ljóst virðist að stór hluti Norðlendinga líti frekar til annarra kosta en stóriðju hvað varðar uppbyggingu og þróun atvinnulífs í landsfjórðungnum. …

Margir hafa áhyggjur af að hin nýju störf vegi ekki upp á móti þeim miklu og oft óendurkræfu umhverfisáhrifum sem stóriðjan og tilheyrandi ráðstafanir til raforkuöflunar óneitanlega valda. Þá benda talsmenn annarra atvinnugreina á hættuna á neikvæðum áhrifum stóriðju og virkjana á uppbyggingu annarra atvinnugreina á viðkomandi svæði, ekki síst ferðaþjónustu.

Niðurstöðurnar hljóta raunar að vera hvatning þeim sem vilja kanna vandlega aðra atvinnukosti, sem væru meira í takt við nýja tíma upplýsingasamfélags og hátækniiðnaðar.“

Vinstri hreyfingin – grænt framboð tekur undir þessi orð Morgunblaðsins.

Fyrirhuguð sala Landssímans er afar umdeild og er þó vægt til orða tekið. Fjarskiptin eru einn af hornsteinum almannaþjónustunnar. Í Þjóðarpúlsi Gallups nýverið voru 76% aðspurðra andvíg sölu á grunnfjarskiptakerfi Símans. Landssíminn skilar milljörðum í ríkissjóð á hverju ári. Það er enginn bóndi svo vitlaus að selja bestu mjólkurkúna úr fjósinu, en þetta vill formaður Framsóknarflokksins gera gegn vilja meginþorra þjóðarinnar og gegn vilja nánast öllum kjósendum Framsóknarflokksins. Fólki blöskrar einkavæðingarfíkn ríkisstjórnarinnar. Þar virðist ekkert heilagt.

Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs vill stöðva sölu Símans og krefst þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðin á að hafa síðasta orðið.

Landsmenn hafa fengið smjörþefinn af markaðsvæðingunni á almannaþjónustunni. Stórhækkun rafmagnsreikninga hjá heimilum og minni fyrirtækjum og þó sérstaklega hjá mörgum bændum og í þéttbýli þar sem ekki er hitaveita. En þetta er bara byrjunin. Nú er ríkisstjórnin að keyra í gegnum þingið skattlagningu á hitaveitur og rafveitur. Almenni notandinn, litlu iðnfyrirtækin og bændurnir borga. Stóriðjan sleppur hins vegar alveg því hún er með langtímasamninga. Sveitarfélögin mótmæla. Launþegasamtökin mótmæla. Almenningur mótmælir. Einkavæðingarkvörn ríkisstjórnarinnar malar.

Hart hefur verið deilt um vegamál og talað er um hagsmuni höfuðborgar annars vegar og hagsmuni landsbyggðar hins vegar. Talað er um arðsama og óarðsama búsetu. Bíðum við, erum við ekki öll Íslendingar og ein þjóð í þessu landi?

Greiðar samgöngur eru forsenda samkeppnishæfrar byggðar í landinu öllu. Má nefna héraðsvegina, sveitavegina, sem teygja sig út til stranda og inn til dala og eru forsenda fyrir dreifða búsetu í landinu. Þetta eru vegirnir sem stækka Ísland, stækka það sem ferðamannaland. Vegur að Grettislaug á Reykjaströnd, út á Látrabjarg, eða norður í hina einstæðu byggð í Árneshreppi á Ströndum. Vegirnir, skólarnir, veiturnar, við leggjum ekki hagnaðarmat eða reiknum út arðsemiskröfuna á nágrannann. Velferðarþjónustan öll er sameign okkar allra. Um þessa þætti stendur Vinstri hreyfingin – grænt framboð vörð.

Góðir hlustendur. Við erum stolt af því að byggja þetta land. Inn til dala og út til stranda. Við höfum öll sama rétt og sömu skyldur, aldnir sem ungir, hvar sem við búum á landinu. — Ég þakka þeim sem hlýddu.