131. löggjafarþing — 132. fundur,  11. maí 2005.

Samgönguáætlun fyrir árin 2005--2008.

721. mál
[11:37]

Jóhanna Sigurðardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég hafði ætlað að fá sératkvæðagreiðslu um 4.1.5 1.2 og hafði ráðfært mig við starfslið þingsins um að það væri hægt að fá sérstaka atkvæðagreiðslu um 4.1.5. 1.2 Verkefni á höfuðborgarsvæðinu sem við þingmenn Samfylkingarinnar á höfuðborgarsvæðinu ætluðum að styðja. (Gripið fram í: Nú?) Ég er óánægð með það að atkvæðagreiðslu skuli hagað á þennan veg því að ég hafði gengið úr skugga um að atkvæðagreiðsla færi sérstaklega fram varðandi þennan tölulið vegna þess að það er mikilvægt að við þingmenn á höfuðborgarsvæðinu fáum að greiða atkvæði um þetta. Hefði mér verið kunnugt um að það hefði ekki verið hægt hefði ég að sjálfsögðu komið í atkvæðaskýringu í upphafi um breytingartillögu hv. þm. Gunnars Birgissonar. Ég vil því lýsa óánægju minni með þessa fundarstjórn og þessa atkvæðagreiðslu eins og henni er háttað hér.