131. löggjafarþing — 133. fundur, 11. maí 2005.
Frestun á fundum Alþingis.
816. mál
[12:10]
forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):
Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar, svohljóðandi:
Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 11. maí 2005 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til septemberloka.
Tillagan skýrir sig sjálf.